Innlent

Sérsveitaraðgerð á Kársnesi

Agnar Már Másson og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa
Lögregluaðgerðin á sér stað á Kársnes.
Lögregluaðgerðin á sér stað á Kársnes. Vísir/Vilhelm

Umfangsmikil sérsveitaraðgerð stendur yfir á Kársnesi í Kópavogi. Tveir sjúkraflutningabílar voru sendir á vettvang að sögn slökkviliðs. Lögregla gefur ekkert upp að svo stöddu.

Hildur Rún Björnsdóttir hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir við Vísi að lögregluaðgerðin standi enn yfir. Hún sagðist ekkert geta tjáð sig um málið frekar, annað en að aðgerðin stæði yfir í húsabyggð á Kársnesi.

Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi Ríkislögreglustjóra, staðfestir við Vísi að sérsveitarmenn séu á staðnum.

Varðstjóri slökkviliðsins segir við Vísi að tveir sjúkrabílar hafi verið sendir á vettvang að beiðni lögreglu.  


Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.


Sjónarvottur segir að lögregluaðgerðin sé við Hafnarbraut. Búið er að girða af stórt svæði á Kársnesinu.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×