Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Oddur Ævar Gunnarsson og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 22. maí 2026 10:25 Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Vísir/Lýður Orri Björnsson oddviti Sjálfstæðisflokksins segir að áður en viðræðum var slitið við Framsókn hafi samningar tekist um að Valdimar Víðisson yrði næsti bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Þeir hafi handsalað það að halda viðræðum áfram daginn eftir, en svo hafi skrítin atburðarás farið af stað sem lauk með því að Sjálfstæðisflokkur sleit viðræðum.
Þetta kom fram í kvöldfréttum Sýnar í gær. Líkt og fram hefur komið sleit Sjálfstæðisflokkur meirihlutaviðræðum við Framsókn í gær vegna meints trúnaðarbrests. Þá sagði oddviti Samfylkingar að hún útilokaði samstarf við Framsókn og oddviti Viðreisnar að það hugnaðist henni ekki lengur. Þær sögðu Valdimar Víðisson oddvita Framsóknar hafa leikið tveimur skjöldum og átt í viðræðum við Samfylkingu og Viðreisn á sama tíma og Sjálfstæðisflokk. Valdimar hefur hafnað því með öllu. Tókust á um bæjarstjórastólinn „Við erum búin að vera í samstarfi í átta ár með Framsóknarflokknum. Við hittum þau á sunnudaginn, svo hittumst við aftur þrisvar á mánudeginum og það snerist að stórum hluta um það að Valdimar vildi vera bæjarstjóri áfram. Ég lagði til ýmsar aðrar tillögur, um að skipta embættinu. Svo lagði ég til að það yrði ráðinn faglegur bæjarstjóri og hann hafnaði þeim öllum. Það endaði á því að við sögðum: Ókei, þú verður þá bæjarstjóri næstu fjögur árin og það var handsalað að við myndum halda áfram viðræðum daginn eftir. Með handabandi kvöddumst við með það á hreinu að Valdimar Víðisson yrði bæjarstjóri næstu fjögur árin,“ segir Orri í kvöldfréttum Sýnar. „Síðan fer af stað skrítin atburðarás í gang á þriðjudagsmorgninum þar sem hann frestar fundi meðal annars og svo aflýsir hann honum og segir að það nái ekki lengra í bili, minnir mig að hann hafi sagt eitthvað á þá leiðina. Og þá tekur við einhverskonar óvissa og ég reyni að skilja og komast að því hvað er í gangi, það gengur frekar illa og síðan kemur í ljós að við tölum saman á þriðjudagskvöldi og ákváðum að reyna að halda áfram og fara í formlegar viðræður.“ Það hafi komið upp að Valdimar hafi verið að tala við alla flokkana í einu. Orri segir að sér þyki það skrítið þegar búið sé að takast í hendur um það að það verði óbreyttur bæjarstjóri næstu fjögur árin. „Ég lít ekki þannig á að handaband geti verið óformlegt og ómarktækt, ef ég tek í hendina á fólki og lofa því einhverju þá ætla ég að standa við það, þannig mér fannst þetta skrítið.“ Ekki margir kostir eftir í stöðunni Það barst tilkynning um það í gær að formlegar viðræður væru hafnar, hann sagði mér að þá hefði hann talið að það væri byrjað þetta formlega samtal, hvað segir þú um það, af því þú ert að vísa til mánudagsins, er þetta bara einhver smáatriði sem verður rifist um? „Ég veit það ekki en auðvitað er það þannig að þegar þú talar við fólk, fullorðið fólk sem veit alveg hvað það er að tala um þá er það ekkert sérstaklega óformlegt þegar þú ert búinn að taka í höndina á viðkomandi um eitthvað atriði sem var meginatriði í hans samningi.“ Örstutt, eruð þið að fara í samstarf við aðra flokka? „Það er ljóst að það verður að mynda meirihluta í Hafnarfirði og það eru ekkert margir kostir eftir. Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf lýst því yfir að hann sé tilbúinn að vinna með öllum og það verður auðvitað að gera það, það verður að mynda einhverskonar meirihluta en ég myndi ekki hafa stórar áhyggjur af því að það muni ekki gerast.“ Viðreisn, Samfylking og Sjálfstæðisflokkur, hvernig lýst þér á það, eruð þið byrjuð að tala saman? „Við ræddum saman í gær um það sem hafði gerst en við erum ekki komin í neitt samtal um það hvernig við ætlum að mynda meirihluta.“
Hafnarfjörður Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira