Innlent

Hyggjast halda sam­starfinu á­fram

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Berglind Harpa Svavarsdóttir og Jónína Brynjólfsdóttir árið 2022 þegar flokkarnir mynduðu meirihluta.
Berglind Harpa Svavarsdóttir og Jónína Brynjólfsdóttir árið 2022 þegar flokkarnir mynduðu meirihluta. Múlaþing

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkur hafa formlega hafið viðræður um myndun meirihluta í Múlaþingi. Flokkarnir hafa unnið saman síðustu kjörtímabil.

Austurfrétt greinir frá. Þar segir að formlegar viðræður séu hafnar og stefnt er að því að leggja lokahönd á málefnasamninginn í byrjun næstu viku.

Sjá nánar: Lokatölur í Múlaþingi: Meirihlutinn bætir við sig

Frá stofnun Múlaþings árið 2020 hafa Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn átt í meirihlutasamstarfi. Flokkarnir héldu meirihluta sínum í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum þar sem Framsókn hlaut þrjá fulltrúa og Sjálfstæðisflokkurinn fjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×