Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 20. maí 2026 20:52 Snekkjan við höfn í Mexíkó. EPA La Datcha Marine X Ltd., sem á snekkjuna La Datcha sem siglt var inn Eyjafjörðinn í mars, hefur stefnt íslenska ríkinu og Landhelgisgæslunni. Skipverjum var meinuð koma til landsins á grundvelli þvingunaraðgerða varðandi Rússland.
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu en Rúv greindi fyrst frá. La Datcha var siglt inn í Eyjafjörðinn á leið sinni til Akureyrar frá Istanbúl þann 21. mars. Við komuna var þeim hins vegar meinuð hafnarkoma. Ákvörðunin var byggð á þeim hluta þvingunaraðgerða sem kveður á um að skip sem sigldi undir rússneskum fána og hefur skipt um fánaríki eftir 24. febrúar 2022 sé óheimill aðgangur að höfn í ríki á EES svæðinu. Snekkjunni er siglt undir fána Panama í dag en var undir rússneskum fána frá því í apríl 2021 fram í september 2022. Starfsmönnum skipsins, en alls voru 26 um borð, var heimilt að sigla snekkjunni að bryggju á Akureyri til að taka olíu og neyðarvistir. Undanþágan var veitt af öryggisástæðum. Snekkjan var einnig við höfn í Hólmavík í eina nótt vegna vélarbilunar og sigldi á brott þann 31. mars. Gunnar Sturluson, lögmaður félagsins, segir í samtali við Rúv að þann 1. júní verði tekist í Héraðsdómi Reykjavíkur um lögmæti reglnanna sem vísað var í þegar snekkjunni var meinað að koma til hafnar. Snekkjan er í eigu félagsins La Datcha Marine X Ltd. en er í eigu Oleg Tinkov, rússnesks auðmanns sem stofnaði Tinkoff-banka í Rússlandi. Hann býr ekki lengur þar í landi vegna gagnrýni sinnar á stjórn Vladimírs Pútín Rússlandsforseta og gaf upp rússneska ríkisborgararéttinn sinn. Sjá nánar: Snekkju skattsvikara siglt inn í Eyjafjörðinn Tinkov var eitt sinn milljarðamæringur, í bandarískum dollurum, en var fundinn sekur um skattsvik í Bandaríkjunum árið 2019. Hann greiddi fimm hundruð milljóna dollara sekt, rúmlega 62 milljarða króna, auk þess sem hann gaf upp bandaríska ríkisborgararéttinn sinn. Í dag er hann með kýpverskan ríkisborgararétt og er búsettur í Sviss.
Akureyri Dómsmál Rússland Landhelgisgæslan Hafnarmál Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira