Einmitt, alveg hreint stórkostleg vörn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 20. maí 2026 09:30 Við Íslendingar myndum greiða með okkur ef við gengjum í Evrópusambandið. Við myndum þannig greiða meira í sjóði sambandsins en skilaði sér til baka úr þeim í hvers kyns styrki. Þar á meðal í bæði landbúnaðar- og byggðastyrki. Einungis er deilt um það hversu marga milljarða eða tugi milljarða króna á ári. Við yrðum í hópi minnihluta ríkja Evrópusambandsins sem greiða reikninginn. Ástæða er einkum háar þjóðartekjur okkar miðað við flest ríki sambandsins. Meirihluti ríkja Evrópusambandsins fær þannig meira úr sjóðum þess en þau leggja í púkkið eða 17 af 27. Flest gengu þau í sambandið fyrir meira en 20 árum og alls óvíst hvenær þau fara að greiða meira en þau fá til baka. Tíu önnur ríki eru annað hvort samþykkt umsóknarríki, þar á meðal Úkraína og Moldóva, eða möguleg umsóknarríki. Komi til inngöngu þeirra í Evrópusambandið munu þau sömuleiðis öll fá meira frá sambandinu en þau munu greiða til þess. Fyrir vikið er áhugavert svo ekki sé meira sagt þegar harðir Evrópusambandssinnar hér á landi, eins og til dæmis Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar, í grein á Vísi í vikunni, reyna að freista okkar með digrum sjóðum Evrópusambandsins sem við kæmumst í innan þess. Ekki sízt styrki til byggðamála og innviðauppbyggingar. Sem sagt sjóðum sem við myndum greiða meira í en fengist til baka sem nota mætti í slíka uppbyggingu hérlendis. Hliðstætt má segja um evruna sem Magnús nefndi einnig til sögunnar. Það er ástæða fyrir því að harðir Evrópusambandssinnar tala helzt aldrei um aðrar hagstærðir en vexti þegar hún er annars vegar. Þannig tala þeir til dæmis ekki um hagvöxt, framleiðni eða atvinnuleysi. Enda ekkert til að hrópa húrra yfir eins og lesa má um í skýrslum sem unnar hafa verið fyrir Evrópusambandið. Lágir vextir evrusvæðisins eru það ekki heldur enda birtingarmynd efnahagslegrar stöðnunar. Magnús nefndi einnig öryggi og skjól í þeim efnum og sagði Evrópusambandið standa vörð um sameiginlega hagsmuni ríkja þess þegar kæmi að öryggismálum „sem og í tollastríðum samtímans.“ Svona eins og þegar sambandinu og ríkjum þess tókst að koma efnahagsöryggi sínu í fullkomið uppnám með því að verða háð rússneskri orku áratugum saman þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir og um leið fjármagna hernað Rússlands að sögn forystumanna sambandsins sjálfs? Hvað varðar tollamálin var upphaflega lagður 10% grunntollur á Ísland af Bandaríkjunum sem síðan var færður upp í 15%. Hins vegar var lagður 20% tollur á Evrópusambandið þegar Ísland fékk á sig 10%. Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði sambandinu síðan 50% tolli en færði þá tölu síðar niður í 30%. Í kjölfar viðskiptasamnings á milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins, sem fól í sér ýmsa eftirgjöf af hálfu sambandsins, endaði tollurinn í 15%. Til þess að fá 15% toll, sama toll og Ísland, þurfti Evrópusambandið til að mynda að samþykkja stóraukin kaup ríkja þess á orku og vopnum frá Bandaríkjunum og fella niður tolla á tilteknar bandarískar vörur. Forystumenn sambandsins féllu nánast á kné og samþykktu meira eða minna allt sem Trump fór fram á. Á sama tíma er 15% tollurinn á Íslandi án allra slíkra skilyrða. Einmitt, alveg hreint stórkostleg vörn sem felst ljóslega í því að vera í sambandinu í þessum efnum! Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar