Innlent

„Ökufanturinn“ piltur undir tví­tugu

Árni Sæberg skrifar
Bíll ökumannsins hafnaði á trjám við aðrein á Reykjanesbraut þar sem hún mætir Breiðholtsbraut.
Bíll ökumannsins hafnaði á trjám við aðrein á Reykjanesbraut þar sem hún mætir Breiðholtsbraut.

Ökumaðurinn sem lögregla eltist við á ofsahraða á Reykjanesbraut í gærkvöldi er piltur undir tvítugu.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu vegna málsins frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 

Þar segir að þrír hafi verið fluttir á Landspítalann eftir að eftirför lauk á frárein frá Reykjanesbraut að Breiðholtsbraut í Reykjavík á ellefta tímanum í gærkvöldi. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafi borist tilkynning um málið skömmu fyrir klukkan tíu, en þá hafi bifreið verið ekið á ofsahraða frá Suðurnesjum og eftir Reykjanesbraut áleiðis að Hafnarfirði. 

Myndskeið af vettvangi má sjá í spilaranum hér að neðan:

Þar hafi eftirför embættisins hafist, en fyrrnefndri bifreið hafi verið ekið eftir Reykjanesbraut um Hafnarfjörð, Garðabæ, Kópavog og Reykjavík, en hafi eftirförinni lokið þegar „ökufanturinn“ ók aftan á aðra bifreið. Við áreksturinn hafi báðar bifreiðarnar hafnað utan vegar. Tveir hafi verið í bifreiðinni, sem ekið var á og báðir hafi verið fluttir á slysadeild, en ekki sé talið að meiðsli þeirra séu alvarleg. 

Lögreglan á eftir bílnum á Reykjanesbrautinni í gærkvöldi.

„Ökufanturinn, piltur undir tvítugu, var handtekinn á vettvangi og í framhaldinu fluttur á Landspítalann til aðhlynningar. Ekki þarf að fara mörgum orðum um alvarleikann að aka með þessum hætti, en ljóst er að ökufanturinn stofnaði lífi og heilsu annarra vegfaranda í mikla hættu með aksturslagi sínu. Í Hafnarfirði ók hann jafnframt stuttlega inn í Áslandshverfið á meðan eftirförinni stóð. Lögreglumenn settu út tvær naglamottur, aðra í Hafnarfirði og hina í Garðabæ, þegar reynt var að stöðva ökufantinn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×