Innherji

Varar við „al­var­legri stöðu“ sem geti haft ófyrir­sjáan­legar af­leiðingar fyrir fé­lagið

Hörður Ægisson skrifar
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að ekkert hafi orðið af boðuðum fundi stjórnenda flugfélagsins og flugmanna síðastliðinn föstudag vegna „samstilltra aðgerða“ þeirra um að sniðganga fundinn.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að ekkert hafi orðið af boðuðum fundi stjórnenda flugfélagsins og flugmanna síðastliðinn föstudag vegna „samstilltra aðgerða“ þeirra um að sniðganga fundinn. Sigurjón Ólason

Forstjóri Icelandair fer hörðum orðum um „ólögmætar […] samstilltar aðgerðir“ flugmanna félagsins síðustu vikur, sem hafa orðið þess valdandi að aflýsa hefur þurft fjölda flugferða, og segir alvarlega stöðu vera að teiknast upp sem geti haft „ófyrirsjáanlegar afleiðingar“ með tjóni sem hluthafar hafi engan áhuga á að taka á sig. Þá fullyrðir hann að þrátt fyrir bætta nýtingu undanfarin ár þá sé flugmannakostnaður Icelandair orðinn ósamkeppnishæfur.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, hefur sakað flugmenn um að stunda óformlegar aðgerðir í tengslum við kjaraviðræður flugfélagsins við Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) en að undanförnu hefur nokkrum flugferðum Icelandair verið aflýst vegna áhafnaskorts. Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, hefur hafnað þessu.

Kjarasamningar Icelandair við allar sínar helstu flugstéttir – flugmenn, flugfreyjur og flugvirkja – hafa verið lausir allt frá því í lok september og nýlega var viðræðum við FÍA og Flugvirkjafélag Íslands vísað til Ríkissáttasemjara.

Aflýsingar vegna flugmannaskorts hafa ekki átt sér stað í meira en áratug og því augljóst hvað er að eiga sér stað.

Síðastliðinn föstudag hafði verið boðað til fundar með stjórnendum Icelandair og flugmönnum félagsins þar sem til stóð að ræða stöðuna í kjaramálum og ekki hvað síst áformaða fjárfestingu á tæplega helmingshlut í Fly Play á Möltu. Formaður FÍA hafði gert athugasemdir við fundinn og að til hans væri boðað án aðkomu stéttarfélagsins.

Í nokkuð ítarlegum tölvupósti sem Bogi sendi á flugmenn í gær, sem Innherji hefur undir höndum, segir forstjórinn að það hafi verið „veruleg vonbrigði“ að flugmenn hafi sniðgengið þann fund og þar hafi verið um að ræða samstilltar aðgerðir. Það eigi sérstaklega við í ljósi þess að flugmenn hafa kallað eftir nánari upplýsingum um málið og að málflutningur FÍA hafi einkennst af rangfærslum sem mikilvægt sé að leiðrétta.

Bogi nefnir að starfsmenn eða stéttarfélög geti að sjálfsögðu lýst skoðunum sínum á stefnu og ákvörðunum Icelandair, en hins vegar sé óásættanlegt að grípa til „ólögmætra aðgerða“ í mótmælaskyni og að hafna samtali. Hann fullyrðir að flugmenn standi í samstilltum aðgerðum sem séu að valda félaginu tjóni og viðskiptavinum miklum óþægindum.

Þetta er virkilega sorgleg framganga og við erum að sjá ástand raungerast sem er ómögulegt að útskýra fyrir fjárfestum, fjármögnunaraðilum, samstarfsfólki okkar og íslenskum almenningi.

Þá vísar forstjórinn til þess að ekki þurfi annað en að lesa svonefnda „föstudagsmola „FÍA“ þar sem talað er um samstilltar aðgerðir flugmanna sem snúa að því að hafna sölu frídaga. „Samstilltu aðgerðirnar sem talað er um í molunum hafa svo raungerst síðustu tvær vikurnar með fjölda aflýsinga, seinkana og tjóni sem af því hlýst. Aflýsingar vegna flugmannaskorts hafa ekki átt sér stað í meira en áratug og því augljóst hvað er að eiga sér stað. Aðgerðir sem þessar eru ólögmætar samkvæmt vinnumarkaðslöggjöfinni.“

Að mati Boga sé þetta „virkilega sorgleg framganga“ og hefur þau áhrif að það er að raungerast ástand sem „ómögulegt“ sé að útskýra fyrir fjárfestum, fjármögnunaraðilum, samstarfsfólki og íslenskum almenningi – ekki síst þegar horft er á umhverfið sem Icelandair er núna að fást við þar sem eldsneytisverð hefur tvöfaldast og óvissan er mikil. „Þetta er alvarleg staða sem getur haft ófyrirséðar afleiðingar, tjón sem hluthafar félagsins hafa engan áhuga á að taka á sig,“ að sögn forstjórans.

Hlutabréfaverð Icelandair, sem hefur lækkað nánast stöðugt undanfarna mánuði og misseri, stendur núna í 70 aurum á hlut og er við sitt lægsta sögulega gildi. Bandaríska fjárfestingafélagið Bain Capital er langsamlega stærsti hluthafi Icelandair með ríflega 17 prósenta hlut en íslenskir lífeyrissjóðir eiga samanlagt í kringum fjórðungshlut, nokkuð minna en þekkist í flestum öðrum fyrirtækjum í Kauphöllinni.

Rekstrarumhverfi Icelandair hefur verið erfitt um nokkurt skeið, sem einkennist meðal annars háu raungengi krónunnar, mikilli samkeppni í flugi yfir Atlantshafið og meiri launahækkunum en þekkist hjá helstu keppinautum, og það hefur verið nánast samfellt rekstrartap hjá félaginu um margra ára skeið. Ekki er útlit fyrir að á því verði breyting í ár en þótt niðurstaðan á fyrsta fjórðungi hafi verið sumpart yfir væntingum þá mun vaxandi kostnaður vegna olíuverðshækkana mun lita verulega afkomu næstu fjórðunga.

„Fásinna“ að fyrrverandi stjórnendur Play séu að taka yfir Icelandir

Vegna stórfelldra verðhækkana á þotueldsneyti þá hefur Icelandair dregið nokkuð saman flugframboð sitt á árinu. Þá tilkynnti félagið einnig um það á dögunum að það hefði tekið þá ákvörðun að hætta rekstri á Boeing 757-vélunum í áætlunarflugi fyrr en áætlað var.

Í föstudagsmolunum er talað um að fyrrverandi stjórnendur Play séu jafnvel að taka yfir Icelandair. Það þarf ekkert að skýra út fyrir skynsömu fólki hversu mikil fásinna það er.

Í póstinum til flugmanna þá ræðir Bogi einnig hugsanlega fjárfestingu Icelandair á 49 prósenta hlut í Fly Play Europe, sem tilkynnt var um 1. apríl síðastliðinn, og segir að það hafi verið í „raun ótrúlegt“ að lesa fyrrnefnda föstudagsmola FÍA hvað það mál snertir, einkum í ljósi þess að stéttarfélagið er með samning við Air Atlanta sem rekur dótturfélag með flugrekstrarskírteini á Möltu.

„Í föstudagsmolunum er talað um að fyrrverandi stjórnendur Play séu jafnvel að taka yfir Icelandair. Það þarf ekkert að skýra út fyrir skynsömu fólki hversu mikil fásinna það er. Eins og ég sagði í fyrri pósti er fjárfestingin í Fly Play Europe, ef af henni verður, eingöngu hugsuð til að styrkja kjarnarekstur Icelandair á Íslandi, sem til lengri tíma mun byggja upp fleiri eftirsótt heilsársstörf hér á landi, samfélaginu öllu til heilla,“ skrifar Bogi.

Þá ítrekar forstjórinn, rétt eins og kom fram í yfirlýsingu frá félaginu fyrr í þessum mánuði, að flugmenn Icelandair njóti einna bestu kjara sem þekkist á Norðurlöndum. Það endurspeglist meðal annars í mikilli eftirspurn eftir störfum hjá félaginu og því að flugmenn undir sextugu, sem hafa hætt hjá félaginu, séu teljandi á fingrum annarrar handar.

Tekst ekki að afla fjármagns „ef við erum sjálf að valda félaginu tjóni“

Engu að síður, útskýrir Bogi, þá hafi flugmannakostnaður félagsins þróast með þeim hætti á undanförnum árum að hann er orðinn ósamkeppnishæfur, þrátt fyrir bætta nýtingu. „Á sama tíma er mikilvægt að jafna álag, auka fyrirsjáanleika og bæta skráargerð til þess að bæta lífsgæði flugmanna. Við náum ekki árangri í þessu verkefni okkar nema með uppbyggilegu samtali sem hefur það að markmiði að tryggja áfram góð kjör okkar flugmanna og á sama tíma samkeppnishæfan rekstur Icelandair.“

Þetta er allt í okkar höndum en það er ljóst að ef við erum sjálf að valda félaginu tjóni mun okkur ekki takast að afla fjármagns sem er nauðsynlegt til að láta drauma okkar rætast.

Hátt raungengi krónunnar, einkum gagnvart Bandaríkjadal, er að leika rekstur Icelandair grátt um þessar mundir. Launakostnaður félagsins jókst um átján prósent milli ára á fyrsta fjórðungi en á föstu gengi nam hækkunin fjögur prósent. Á árinu 2025 var launakostnaður Icelandair samtals um 455 milljónir dala, eða um 26 prósent af öllum rekstrarkostnaði félagsins.

Þá brýnir Bogi alla aðila til að sýna ábyrgð í þessari „alvarlegu stöðu“ og minnir á að tækifæri til þróunar leiðakerfis félagsins séu gríðarleg. „Ef þau verða nýtt þá mun það ekki eingöngu koma starfsmönnum og hluthöfum félagsins til góða, það mun styðja við lífskjör á Íslandi til framtíðar. Þetta er allt í okkar höndum en það er ljóst að ef við erum sjálf að valda félaginu tjóni mun okkur ekki takast að afla fjármagns sem er nauðsynlegt til að láta drauma okkar rætast.“


Tengdar fréttir

Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi

Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna gagnrýnir fyrirhuguð áform Icelandair um að kaupa nær helmingshlut í maltneska félaginu Fly Play Europe. Hann segir áform flugfélagsins vera að færa hluta starfsemi flugfélagsins út fyrir íslenska kjarasamninga.

Icelandair grunar flugmenn um græsku

Icelandair segir að þótt Félag íslenskra atvinnuflugmanna fullyrði að engar aðgerðir sé hafnar sem tengist kjaraviðræðum bendi margt til þess að um óformlegar aðgerðir sé að ræða, eftir nánari skoðun flugfélagsins. Vísbendingar séu um samantekin ráð og kallar forstjóri félagsins eftir því að allir aðilar sýni ábyrgð.

Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn

Yfirlýsing Icelandair þar sem fram kemur að félagið gruni flugstjóra um að hafa ráðist í óformlegar aðgerðir í kjarabaráttu kom flatt upp á Jón Þór Þorvaldsson formann Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Hann segir félagið hvergi bangið og munu mæta til leiks til fundar með forsvarsmönnum félagsins á morgun án gremju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×