Landlæknir braut á deildarstjóra réttargeðdeildar Árni Sæberg skrifar 15. maí 2026 13:23 Réttargeðdeild er til húsa á Kleppi. vísir/vilhelm Landsréttur hefur dæmt íslenska ríkið til þess að greiða fyrrverandi deildarstjóra réttar- og öryggisdeildar Landspítalans 800 þúsund krónur í miskabætur vegna brots á persónuverndarlögum. Landlæknir greindi Geðhjálp frá því að deildarstjórinn hefði verið settur í ótímabundið leyfi í tengslum við alvarlegar ábendingar um slæman aðbúnað á öryggis- og réttargeðdeildum Landspítalans.
Í dómi Landsréttar, sem kveðinn var upp á miðvikudag, segir að umrædd miðlun persónuupplýsinga hefði hvorki getað byggst á rétti Geðhjálpar til þeirra á grundvelli upplýsingalaga né hefði vinnsla þeirra verið nauðsynleg til að fullnægja lagaskyldu í skilningi laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Vinnslan hefði farið fram í andstöðu við lög um persónuvernd og almennu persónuverndarreglugerðina. Við mat á því hvort deildarstjórinn hefði hlotið tjón vegna miðlunarinnar hafi rétturinn litið til þess að undir ófjárhagslegt tjón í skilningi almennu persónuverndarreglugerðarinnar gæti fallið ótti þess sem upplýsingarnar lúta að, meðal annars við mögulega hagnýtingu eða misnotkun þriðja aðila á þeim. Talið hafi verið að slíkt ætti við í málinu og að hin ólögmæta miðlun persónuupplýsinga hefði því valdið honum tjóni, og að embætti landlæknis og ríkinu hefði ekki tekist að afsanna að sú miðlun hefði verið á ábyrgð landlæknis í skilningi almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Ekki hafi verið talið að deildarstjórinn hefði sýnt fram á að umfjöllun í fjölmiðlum ætti rætur að rekja til hinnar ólögmætu miðlunar upplýsinga, en á hinn bóginn hafi legið fyrir að samtökin Geðhjálp miðluðu upplýsingunum áfram og með því hafi neikvæðri opinberri umræðu um störf deildarstjórans viðhaldið. Því hafi ríkinu verið gert að greiða honum 800.000 krónur í miskabætur. Þá greiði ríkið manninum 3,5 milljónir króna í málskostnað.
Landspítalinn Embætti landlæknis Dómsmál Heilbrigðiseftirlit Persónuvernd Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira