Íris Helga neitar sök Birgir Olgeirsson skrifar 13. maí 2026 14:02 Íris Helga í dómsal í dag. Vísir Íris Helga Jónatansdóttir neitaði sök við þingfestingu á ákæru gegn henni í Héraðsdómi Reykjaness sem hófst klukkan 14 í dag.
Íris Helga er ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu hennar. Ákæruliðirnir eru tugir talsins en hún neitaði sök í þeim öllum. Dómari ákvað að fyrirtaka í málinu færi fram á mánudag. Ætla má að þá verði krafa verjanda Írisar Helgu um að þinghöld í málinu verið háð fyrir luktum dyrum tekin fyrir. Réttargæslumenn brotaþola lögðust gegn þeirri kröfu. Samkvæmt lögum um meðferð sakamála skulu þinghöld háð í heyranda hljóði, nema í undantekningartilfellum. Reiknað er með að aðalmeðferð hefjist í haust. Samkvæmt ákæru frá 7. apríl er hún sökuð um hótanir, ærumeiðingar, rangar sakargiftir, skjalafals og barnaverndarlagabrot á árunum 2022 til 2025. Íris Helga í Héraðsdómi Reykjaness í dag.Vísir Hún á meðal annars að hafa sakað menn opinberlega um barnaníð, ofbeldi og nauðgun. Þá er hún sökuð um að hafa fengið annan mann til að maka saur á hurðarhúna heimilis og bíls. Maðurinn er einnig ákærður í málinu fyrir hlutdeild í hluta brota Írisar. Sá mætti ekki fyrir þingfestingu vegna veikinda. Afstaða hans verður þá væntanlega kunngjörð á mánudag við fyrirtöku. Hún er einnig sökuð um að hafa komið að heimili með krukku sem hún sagði innihalda fóstur. Gerðar eru bótakröfur upp á samtals 9,25 milljónir króna og brotin geta varðað allt að fjögurra ára fangelsi.
Lögreglumál Dómsmál Stafrænt ofbeldi Kynferðisofbeldi Mál Írisar Helgu Jónatansdóttur Tengdar fréttir Ákæran á hendur Írisi Helgu: Sakaði menn um barnaníð, laug upp á börn og lét maka saur Íris Helga Jónatansdóttir hefur verið ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu sambýliskonunnar. Hún er meðal annars ákærð fyrir að væna fólkið opinberlega um barnaníð, ljúga kynferðisbroti upp á þrjá skólabræður dóttur eins mannanna og fá mann sem hún var í slagtogi við til að maka saur á hurðarhúna heimilis og bíls eins mannanna. Sá er einnig ákærður í málinu. Þá hefur hún játað að hafa logið nauðgun upp á einn mannanna. 12. maí 2026 15:25 Kona handtekin vegna dánartilkynningar í Morgunblaðinu Lögreglan á Suðurnesjum hefur handtekið konu í þágu rannsóknar á umsáturseinelti í kjölfar birtingar á dánartilkynningu í Morgunblaðinu nú í morgun. Lögregla ætlar að fara fram á gæsluvarðhald yfir konunni í dag. 10. apríl 2026 12:33 Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira
Ákæran á hendur Írisi Helgu: Sakaði menn um barnaníð, laug upp á börn og lét maka saur Íris Helga Jónatansdóttir hefur verið ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu sambýliskonunnar. Hún er meðal annars ákærð fyrir að væna fólkið opinberlega um barnaníð, ljúga kynferðisbroti upp á þrjá skólabræður dóttur eins mannanna og fá mann sem hún var í slagtogi við til að maka saur á hurðarhúna heimilis og bíls eins mannanna. Sá er einnig ákærður í málinu. Þá hefur hún játað að hafa logið nauðgun upp á einn mannanna. 12. maí 2026 15:25
Kona handtekin vegna dánartilkynningar í Morgunblaðinu Lögreglan á Suðurnesjum hefur handtekið konu í þágu rannsóknar á umsáturseinelti í kjölfar birtingar á dánartilkynningu í Morgunblaðinu nú í morgun. Lögregla ætlar að fara fram á gæsluvarðhald yfir konunni í dag. 10. apríl 2026 12:33