Skrípamark kom í veg fyrir að Ronaldo yrði meistari í gær Aron Guðmundsson skrifar 13. maí 2026 09:30 Ronaldo trúði vart sínum eigin augum á varamannabekknum Vísir/Skjáskot Klaufalegt sjálfsmark Al-Nassr á elleftu stundu í gær í leik gegn Al-Hilal í sádi-arabísku deildinni, sá til þess að Cristiano Ronaldo og liðsfélagar hans í liði Al-Nassr tryggðu sér ekki meistaratitilinn en fá annað tækifæri.
Leik liðanna í gær lauk með dramatísku jafntefli, 1-1. Sigur Al-Nassr í leiknum hefði tryggt liðinu meistaratitilinn í Sádi-Arabíu. Ronaldo, sem hafði komið af velli undir lok leiks, trúði vart sínum augum á varamannabekk Al-Nassr í gær þegar að sannkallað skrípamark leit dagsins ljós. Bento with an unfortunate 90+8' own goal ⚽️ pic.twitter.com/IaBAaeIf6v— Roshn Saudi League (@SPL_EN) May 12, 2026 Mohamed Simakan hafði komið Al-Nassr yfir með marki í fyrri hálfleik en tólf sekúndum áður en að uppgefinn uppbótartími leiksins rann sitt skeið gerðu Bento, markvörður liðsins og Inigo Martinez varnarmaður Al-Nassr, sig seka um slæm mistök. Bento virtist ekki eiga í neinum vandræðum með að handsama langt innkast Al-Hilal manna inn á vítateig Al-Nassr. Í þann mund sem Brasilíumaðurinn ætlaði hins vegar að grípa boltann skullu hann og liðsfélaginn Martinez saman með þeim afleiðingum að Bento missti boltann inn í markið. Jöfnunarmark Al-Hilal heldur titilvon liðsins á lífi og frestar fagnaðarlátum Al-Nassr. Við skrípamarkið var klippt á Ronaldo á varmannabekk Al-Nassr í sjónvarpsútsendingu leiksins og mátti sjá á viðbrögðum Portúgalans að hann vissi ekki hvort réttast væri að hlæja eða gráta í þessum aðstæðum. Ronaldo was seconds away from winning his first Saudi Pro League Title 👀Al-Nassr still have a chance to win it next week pic.twitter.com/uc2yM0dS4n— FOX Soccer (@FOXSoccer) May 12, 2026 Ronaldo hefur ekki unnið sádi-arabísku deildina frá því að hann gekk í raðir Al-Nassr í janúar árið 2023. Al-Nassr er enn í bílstjórasætinu þegar kemur að titilbaráttunni með fimm stiga forskot á Al-Hilal og einn leik eftir á meðan að Al-Hilal á tvo leiki eftir.
Sádiarabíski boltinn Sádi-Arabía Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira