Lífið

Blóðug bar­átta á gryfjuboltamóti

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Keppendur skemmtu sér konunglega á gryfjuboltamótinu sem fór fram í Egilshöllinni um helgina.
Keppendur skemmtu sér konunglega á gryfjuboltamótinu sem fór fram í Egilshöllinni um helgina. Sigmar Örn Sigþórsson

Þrumurnar úr Mosfellsbæ tóku bikarinn heim af glæsilegu gryfjuboltamóti sem fram fór í Egilshöllinni laugardaginn 9. maí. Fjórtán lið mættu til leiks, eða um 140 keppendur, og vonast skipuleggjendur til að mótið verði árlegt.

Gryfjuboltamótið fór fram í Egilshöllinni í þriðja sinn um helgina og Þrumurnar komu, sáu og sigruðu.

Mótið hefur jafnframt verið hugsað sem íþróttaviðburður til styrktar styrktarfélaginu Gleym mér ei sem er ætlað að veita þeim sem missa barn á meðgöngu eða í og eftir fæðingu sérstakan stuðning með margvíslegum hætti. 

„Þátttakendur og gestir sýndu málefninu mikinn stuðning og skapaðist hlý og jákvæð stemning í kringum viðburðinn. Með samstöðu og þátttöku tókst að vekja athygli á mikilvægu starfi félagsins um leið og söfnun hefur gengið vonum framar, bæði með mótsgjaldi keppenda jafnt sem frjálsum framlögum frá almenningi,“ sagði í tilkynningu frá skipuleggjendum mótsins.

Hér að neðan má sjá skemmtilegar myndir af mótinu þar sem barist var hart um boltann og gryfjurnar varðar með kló og kjafti:

Hart barist um knöttinn.Sigmar Örn Sigþórsson

Fókus!Sigmar Örn Sigþórsson

Konurnar ráða ráðum sínum.Sigmar Örn Sigþórsson

Hvíta liðið ræðir við svarta liðið.Sigmar Örn Sigþórsson

Gaman saman í gryfjubolta.Sigmar Örn Sigþórsson

Þrumurnar reyna að komast úr gryfjunni.Sigmar Örn Sigþórsson

Áhorfendur voru á öllum aldri.Sigmar Örn Sigþórsson

Beðið eftir boltanum.Sigmar Örn Sigþórsson

Tvær flottar píur í Brennónetlunum.Sigmar Örn Sigþórsson

Ein til í tuskið.Sigmar Örn Sigþórsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.