Sykurneyzla minnkar - án sykurskatts Ólafur Stephensen skrifar 11. maí 2026 12:30 Gamall draugur, sykurskatturinn, hefur enn á ný verið vakinn upp með þingsályktunartillögu Ölmu Möller heilbrigðisráðherra, þar sem er að finna áform um slíka skattlagningu, í þágu baráttunnar við offitu. Markmið áætlunarinnar eru góð og jákvæð, þ.e. að draga úr offitu, vinna gegn fordómum og bæta meðhöndlun offitusjúkdómsins. Tölur um þróun sykurneyzlu benda hins vegar ekki til þess að nauðsynlegt sé að leggja sérstaka skatta á sykraðar vörur til að ná þeim markmiðum. Tölurnar segja okkur að umræða og upplýsing skilar árangri og neytendur velja nú síður ýmsar sykraðar vörur en þeir gerðu fyrir áratug – án þess að hið opinbera hafi á þeim tíma reynt að stýra neyzlu þeirra með skattlagningu. Félag atvinnurekenda gagnrýnir áformin í umsögn til Alþingis um tillögu heilbrigðisráðherra. Flækir bæði fyrirtækjarekstur og stjórnsýslu Í þingsályktunartillögunni eru viðruð áform um að koma á sérstakri skattlagningu á „sérlega orkuríkar, næringarlitlar og gjörunnar matvörur“ en af greinargerð tillögunnar má ráða að þar sé sjónum sérstaklega beint að sykruðum drykkjum og matvælum sem innihalda hátt hlutfall sykurs. Rætt er um að lækka á móti álögur á grænmeti og ávexti. Í skýrslu starfshóps, sem þingsályktunartillagan er byggð á, er vísað til tillagna annars starfshóps, sem skilaði skýrslu 2020, en þær tillögur gagnrýndi Félag atvinnurekenda einnig harðlega. Þær fólu í sér að skattþrepin í virðisaukaskatti á matvæli yrðu þrjú, auk þess sem tekin yrðu upp vörugjöld á ný. Tillögur af þessu tagi fela í sér skrifræði, umstang og flækjustig fyrir fyrirtæki í jafnt framleiðslu, heildsölu og smásölu matvæla og hafa af atvinnulífinu það hagræði, sem felst í tiltölulega einföldu skattkerfi. Þær auka hættu á undanskotum frá skatti og gera síðast en ekki sízt allt eftirlit og utanumhald á vegum skattayfirvalda flóknara, auk þess að auka kostnað hins opinbera af slíku eftirliti. Tillögurnar ganga þannig beint gegn yfirlýstri stefnu ríkisstjórnarinnar um einföldun regluverks atvinnulífsins og hagræðingu í ríkisrekstrinum. Þegar af þeirri ástæðu eiga þær ekki heima í stjórnartillögu. Tillögur um skatta, sem hækka verð á matvöru, verða enn furðulegri þegar haft er í huga að meginverkefni stjórnvalda þessa dagana ætti að vera að berjast gegn verðbólgu með öllum ráðum. Sykurneyzla minnkar verulega Í tillögum starfshóps ráðuneytisins er einnig vísað til landskönnunar á mataræði 2019-2021. Þegar niðurstöður þeirrar könnunar eru skoðaðar nánar, renna þær ekki stoðum undir nauðsyn þess að reynt sé að stýra neyzlu neytenda með skattlagningu á sykraðar vörur: Verulega hefur dregið úr neyzlu á sykruðum gos- og svaladrykkjum, sem minnkaði um 40% á mann frá landskönnun 2010-2011, eða úr 157 ml á dag í 95 ml á dag. Um 55% þátttakenda í könnuninni segjast aldrei drekka slíka sykraða drykki. Um leið hefur neyzla sykurlausra gos- og svaladrykkja aukizt, úr 74 ml á dag í 92 ml á dag. Neyzla orkudrykkja hefur aukizt, en þeir eru alla jafna án sykurs og ekkert kemur fram í niðurstöðunum um framlag þeirra til sykurneyzlu. Vatn er algengasti drykkur landsmanna og koma 38% vökva úr mat og drykk úr kranavatni eða kolsýrðu vatni. Sælgætisneyzla hefur staðið í stað frá fyrri könnun. Neyzla á ís hefur staðið í stað. Neyzla viðbætts sykurs er á niðurleið. Þannig hefur viðbættur sykur sem hlutfall orku lækkað úr 9% í 7%, en í landskönnuninni er vitnað til ráðlegginga um að æskilegt sé að viðbættur sykur gefi aldrei meira en 10% orkunnar. Færð eru rök fyrir því í könnuninni að mögulega sé um vanmat að ræða þar sem fólk geti verið tregt að segja frá millimálsbitum, en sú hugsanlega mæliskekkja á þá væntanlega einnig við um fyrri könnun. Þessar tölur segja okkur ósköp einfaldlega að umræða og upplýsing skilar árangri og neytendur velja síður ýmsar sykraðar vörur en þeir gerðu áratug fyrr – án þess að hið opinbera reyni að stýra neyzlu þeirra með skattlagningu. Þar sem neyzlustýringarskattar hafa verið í gildi erlendis, hafa stjórnvöld oft þakkað þeim mun minni breytingar á neyzlumynztri en þær, sem sjá má í landskönnuninni. Það má hins vegar glöggt sjá á tölunum að vaxandi offituvandi er ekki vegna þess að neyzla á sykruðum vörum hafi aukizt, heldur dregst hún þvert á móti saman. Hlutdeild sykraða gossins dregst saman um helming Sölutölur sem byggjast á raunverulegri sölu í verzlunum eru enn nákvæmari en niðurstöður neyzlukannana. Gögn AC Nielsen úr kassakerfum stórmarkaða sýna að hlutdeild sykraðs goss í gosdrykkjaneyzlu Íslendinga hefur dregizt stórlega saman undanfarinn áratug, eða úr 55% í 27%. Að sama skapi hefur hlutdeild sykurlauss goss og kolsýrðra vatnsdrykkja aukizt, eins og sjá má á myndinni hér að neðan. Á þessum tíma hefur hlutdeild sykurlauss, kolsýrðs vatns hækkað úr 20% í 28% og hlutur sykurlausra gosdrykkja með sætuefnum fór úr 24% í 45%. Þetta gefur fyllri mynd af þeirri þróun sem niðurstöður landskönnunar á mataræði lýsa, auk þess sem tölurnar lýsa áframhaldandi jákvæðri þróun frá árinu 2021, er landskönnuninni lauk. Tilgangurinn helgar ekki meðalið Stjórnvöld verða að hafa meðalhófsregluna í huga þegar þau velja leiðir til að ná markmiðum eins og þeim sem þingsályktunartillaga heilbrigðisráðherra kveður á um. Að mati Félags atvinnurekenda blasir við út frá þeim gögnum, sem hér hafa verið rakin, að tillaga um sykurskatt gengur lengra en svo að hægt sé að réttlæta hana sem tæki í baráttu við offituna. Sykurskattur myndi valda bæði fyrirtækjum og stjórnsýslunni stórfelldum flækjum og vandræðum, að ekki sé talað um þau augljósu áhrif hans að hækka verðlag á mat á verðbólgutímum. Það er tímabært að kveða drauginn aftur niður. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Stephensen Mest lesið Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki skrifstofa heldur framkvæmd Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar