Upp­gjörið: Njarð­vík - Haukar 75-70 | Njarð­vík einum sigri frá titlinum

Siggeir Ævarsson skrifar
Danielle Rodriguez stjórnaði leik sinna kvenna af skörungsskap í kvöld og eru þær nú aðeins einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum.
Danielle Rodriguez stjórnaði leik sinna kvenna af skörungsskap í kvöld og eru þær nú aðeins einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum. Vísir/Ernir

Njarðvík er komið í algjöra lykilstöðu í einvígi liðsins gegn Haukum í úrslitum Bónus-deildar kvenna eftir 75-70 sigur í Njarðvík í kvöld og staðan því 2-0 í einvíginu.

Leikurinn í kvöld fór nokkuð hægt af stað. Bæði lið voru að gera töluvert af mistökum í sókninni en svo hrukku bæði lið í gang og fyrsti leikhluti varð ansi hraður og skemmtilegur. Haukar voru þar skrefinu á undan og leiddu með fimm stigum, 22-27. Tinna Guðrún Alexandersdóttir fór mikinn í leikhlutanum og skoraði tólf stig fyrir Hauka.

Njarðvíkingar voru öllu beittari í öðrum leikhluta en Haukar komust í villuvandræði strax á 4. mínútu leikhlutans. Njarðvík var búið að taka 17 víti í hálfleik og nýta 15 þeirra. Heimakonur komust yfir í fyrsta sinn síðan í byrjun leiks í stöðunni 38-36 en Catherine Mosengo Masa átti síðustu körfu leikhlutans og jafnaði leikinn í 42-42. Masa skaut óaðfinnanlega í leikhlutanum, sex skot niður í sex tilraunum.

Njarðvíkurmegin voru það þær Brittany Dinksins og Dani Rodriguez sem voru allt í öllu í sóknarleik liðsins í fyrri hálfleik, með 30 af 42 stigum liðsins. Einar Árni hefur eflaust kallað eftir framlagi úr fleiri áttum í hálfleik og honum varð að ósk sinni.

Þær Brittany og Dani létu sér nægja að skora sjö stig í leikhlutanum sem Njarðvík vann 20-16 og heimakonur leiddu því með fjórum stigum fyrir lokaátökin og virtust vera að sveifla leiknum sér í vil. Haukar voru þó greinilega ekki á sama máli og unnu sig inn í leikinn aftur og komust fljótlega yfir.

Leikurinn var afar jafn og spennandi síðustu fimm mínúturnar þar sem bæði lið þurftu að hafa mikið fyrir sínum körfum gegn sterkum vörnum. Haukar komust yfir í stöðunni 68-70 þegar Amandina Toi setti þrist. Mínúta og 34 sekúndur á klukkunni á þeim tímapunkti en það reyndist síðasta karfa Hauka í leiknum. Njarðvík skoraði í kjölfarið síðustu sjö stig leiksins og sigldu sigrinum heim og 2-0 forystu í einvíginu.

Njarðvík er því aðeins einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum en liðin mætast aftur í Ólafssal á fimmtudag.

Atvik leiksins

Þristurinn frá Helenu Rafns sem kom Njarðvík yfir 71-70 var sannkölluð himnasending fyrir Njarðvík og upphafið að 7-0 lokaáhlaupi leiksins. 

Stjörnur og skúrkar

Brittany Dinkins var frábær í liði Njarðvíkur í kvöld. Endaði með 30 stig og níu fráköst. Dani Rodriguez kom næst með 15 stig og lét til sín taka í stoðsendingunum í seinni hálfleik og var dugleg að finna aðra leikmenn í góðum færum.

Enginn annar leikmaður Njarðvíkur skoraði meira en átta stig í kvöld en það komust engu að síður sex aðrir leikmenn á blað og settu nokkrar stórar körfur á mikilvægum augnablikum.

Hjá Haukum voru þrír leikmenn með 16 stig, þær Tinna Guðrún Alexandersdóttir, Krystal-Jade Freeman og Catherine Mosengo Masa en Masa klikkaði aðeins úr einu skoti í leiknum og tók einnig níu fráköst.

Tinna skoraði tólf stig í fyrsta leikhluta og hefðu Haukar án vafa þegið meira framlag frá henni í hinum þremur leikhlutunum.

Þá náði Amandine Toi sér aldrei á strik í kvöld. Hún lenti snemma í villuvandræðum og skoraði aðeins níu stig.

Dómarar

Þeir Kristinn Óskarsson, Jóhannes Páll Friðriksson og Jakob Árni Ísleifsson dæmdu leikinn í kvöld. Þeir komust ágætlega frá krefjandi verkefni kvöldsins þar sem bæði lið voru ansi föst fyrir í sínum varnarleik.

Emil Barja er sennilega ekki sammála þessari niðurstöðu minni en þegar liðið þitt spilar fasta vörn er hætt við að villurnar hrannist inn. Eða eins og þeir segja, „shit happens when you party naked.“

Stemming og umgjörð

Frábær stemming og umgjörð í Icemar höllinni í kvöld. Stuðningssveit Njarðvíkur mjög hávær eins og í síðustu leikjum og Haukarnir létu sömuleiðis vel í sér heyra þrátt fyrir að vera töluvert færri í stúkunni.

Viðtöl

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira