„Kynþáttaraunhyggjumaður“ flutti ræðu á viðburði Ungra miðflokksmanna Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 10. maí 2026 14:42 Sverrir Helgason flutti tölu sína við miklar undirtektir á kosningaviðburði Ungra miðflokksmanna fyrir helgi. Anton Sveinn McKee formaður félagsins er til hægri. Vísir/Samsett Sverrir Helgason, yfirlýstur „kynþáttaraunhyggjumaður“ og talsmaður fjöldabrottvísana innflytjenda frá Miðausturlöndum, flutti ræðu á kosningaviðburði ungliðahreyfingar Miðflokksins við miklar undirtektir viðstaddra.
Hann sagði sig úr stjórn ungliðahreyfingarinnar í október í kjölfar þess að fjallað var um rasískar yfirlýsingar hans. Fjallað var um ummæli hans í hlaðvarpinu Bjórkastinu þar sem hann talaði um mikilvægi genamengis í aðlögunarhæfni aðfluttra. Á samfélagsmiðlum hefur hann margoft talað fyrir fjöldabrottvísunum á aðfluttu fólki frá Miðausturlöndum og víðar að. Undanfarið hafa málefni hinsegin fólks verið honum hugleikin en hann hefur birt fleiri færslur þar sem hann kallar regnbogafánann „alnæmisfánann“. Hér fyrir neðan má sjá ræðu Sverris í heild sinni. Í kjölfar þess að Sverrir sagði sig úr stjórn Ungra Miðflokksmanna sagði Anton Sveinn McKee, formaður hreyfingarinnar, að Sverrir talaði ekki fyrir hönd Ungra Miðflokksmanna. Allir séu velkomnir í starfið og beri sjálfir ábyrgð á eigin orðum. Í ræðu sinni að þessu sinni fjallaði hann einnig um málefni hinsegin fólks og mikilvægi þess að Miðflokksmenn gæfu ekki eftir. Barátta þeirra væri háð í þágu barna og að landið væri „fokkt“ næði Miðflokkurinn ekki áhrifum. Hann lauk tölu sinni við mikil fagnaðarlæti, faðmlög og húrrahróp. Haft var samband við Sverri Helgason og Anton Svein McKee við vinnslu þessarar fréttar en hvorugur þeirra vildi tjá sig.
Miðflokkurinn Tengdar fréttir Tali ekki fyrir unga Miðflokksmenn Einn fyrrverandi stjórnarmaður og einn núverandi stjórnarmaður Ungra Miðflokksmanna sem viðrað hafa umdeildar skoðanir opinberlega tala ekki fyrir hönd ungliðahreyfingarinnar. Þetta segir formaður Ungra Miðflokksmanna. Hann segir einstaklinga bera ábyrgð á eigin orðum, allir séu velkomnir í hreyfinguna. 4. nóvember 2025 20:20 Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Hugtak um fjöldabrottflutning fólks af erlendum uppruna sem var þar til nýlega bundið við ystu hægri öfgar í Evrópu er byrjað að láta á sér kræla í íslenskri stjórnmálaumræðu. Varaþingmaður Miðflokksins gerði því nýlega skóna að reka íslenskan ríkisborgara úr landi í samfélagsmiðlafærslu. 12. desember 2025 06:47 Ölgerðin lítur Orkutal „öfgahægrisins“ alvarlegum augum Ölgerðin segist ekki vera í samstarfi við Bjórkastið eða stjórnanda þess, Sverri Helgason, í tengslum við orkudrykkinn Egils Orku. Sverrir lýsti drykknum sem opinberum drykk „íslenska öfgahægrisins“ og hafa aðrir gantast með að hann tengist hvítri kynþáttahyggju. 13. nóvember 2025 13:35 Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Fleiri fréttir Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður Sjá meira
Tali ekki fyrir unga Miðflokksmenn Einn fyrrverandi stjórnarmaður og einn núverandi stjórnarmaður Ungra Miðflokksmanna sem viðrað hafa umdeildar skoðanir opinberlega tala ekki fyrir hönd ungliðahreyfingarinnar. Þetta segir formaður Ungra Miðflokksmanna. Hann segir einstaklinga bera ábyrgð á eigin orðum, allir séu velkomnir í hreyfinguna. 4. nóvember 2025 20:20
Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Hugtak um fjöldabrottflutning fólks af erlendum uppruna sem var þar til nýlega bundið við ystu hægri öfgar í Evrópu er byrjað að láta á sér kræla í íslenskri stjórnmálaumræðu. Varaþingmaður Miðflokksins gerði því nýlega skóna að reka íslenskan ríkisborgara úr landi í samfélagsmiðlafærslu. 12. desember 2025 06:47
Ölgerðin lítur Orkutal „öfgahægrisins“ alvarlegum augum Ölgerðin segist ekki vera í samstarfi við Bjórkastið eða stjórnanda þess, Sverri Helgason, í tengslum við orkudrykkinn Egils Orku. Sverrir lýsti drykknum sem opinberum drykk „íslenska öfgahægrisins“ og hafa aðrir gantast með að hann tengist hvítri kynþáttahyggju. 13. nóvember 2025 13:35