„Sá gamli er miklu fallegri“ Jakob Bjarnar skrifar 9. maí 2026 09:02 Helgi Gíslason sveitarstjóri á Fljótsdalshreppi er á því að gamli kjörkassinn, sem nú hefur lokið leik, sé talsvert fallegri en sá nýi sem Fljótsdælingum er gert af yfirkjörstjórn að taka í gagnið nú. vísir/bjarni Lillý Valgerður Pétursdóttir fréttamaður Sýnar brá sér austur á dögunum til að taka púlsinn á íbúum varðandi komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún komst að ýmsu merkilegu – samgöngumálin voru vitaskuld efst á baugi – en í Fljótsdal rakst hún á kjörgrip sem nú, samkvæmt tilskipan yfirkjörstjórnar, hefur lokið leik. Aldargamall kjörkassi.
Fljótsdalshreppur er eitt af fámennustu sveitarfélögum landsins en þar búa aðeins 115 manns. Engin framboð bárust og er þar því óhlutbundin kosning. Það þýðir að allir íbúar sem eru á kjörskrá eru jafnframt í framboði. Lillý spurði að vonum hvernig það virkaði og fyrir svörum var Helgi Gíslason sveitarstjóri í Fljótsdal. Hann sagði að þetta væri fallegt. „Það er borgaraleg skylda að ef þú ert kosinn í sveitarstjórn þá skaltu bara fara þangað. Fólk velur einfaldlega þá sem það treystir best til að taka ákvarðanir fyrir sveitarfélagið, sem þjóna okkar hagsmunum,“ sagði Helgi. Lillý vildi vita hvort fólk væri almennt áhugasamt um að sitja í sveitarstjórn og Helgi sagði allan gang á því. „Almennt hefur þetta verið þannig að það er auðveldara að komast í sveitarstjórn en úr henni aftur.“ Efast um að nýi kassinn samræmist umhverfisverndarsjónarmiðum Þar af leiðandi er sveitarstjórn í Fljótsdal skipuð sannkölluðum reynsluboltum – þeir hafa setið lengst allra í sveitarstjórnum á Austurlandi. Og þegar Lillý vildi vita hvernig kosningarnar gengju fyrir sig, hvar fólk skilaði atkvæðum sínum, dró Helgi fram forláta kassa, annan kominn til ára sinna en hinn var splunkunýr. „Fólk skilar atkvæði sínu hér í félagsheimilinu, Végarði. Og kassarnir eru hérna. Sá fyrir ofan er gamall kassi sem hefur fylgt Fljótsdælingum í eina öld eða svo. Og fyrir neðan er splunkunýr kassi sem yfirkjörstjórn var að senda okkur. Úr plasti.“ Kassarnir tveir. Sá efri er kominn til ára sinna en fyrir neðan er sá sem yfirkjörstjórn sendi Fljótsdælingum, splunkunýr og staðlaður.vísir/bjarni Helgi upplýsti að þau í Fljótsdal væru með ákaflega öfluga umhverfis- og loftslagsstefnu og hann leyfði sér að efast um að þessi plastkassi, sem tekur nú við af þeim gamla, samræmdist ítrustu umhverfissjónarmiðum þeirra en þau yrðu að sætta sig við kassann. Kjörbók frá 1908 Hann reif þá upp eldri kassann og sagði hann alvöru: „Sjá má af innsiglunum að það er búið að nota hann oft í gegnum tíðina. Og hér ofan í er gömul kjörbók.“ Helgi fletti í bókinni og þá mátti sjá, á fyrstu blaðsíðu kjörbókarinnar, að hún var tekin í gagnið 1908. Hún hefur fylgt Fljótsdælingum lengi. Hvað verður um kassann góða og gamla verður ákveðið á næsta sveitarstjórnarfundi. Sveitarstjórinn á Fljótsdal sýndi fréttamanni Sýnar sögulegan kjörkassa, sem nú hefur lokið leik og svo þann sem tekur við hlutverki forngripsins.vísir/bjarni „Annaðhvort færum við minjasafninu þetta, héraðsskjalasafninu bókina eða setjum þetta í einhvern fallegan glerkassa í félagsheimilinu okkar og höfum til sýnis.“ Helgi var spurður hvort nýi kassinn væri eitthvað betri og hann sagðist ekki vita það, ekki væri komin reynsla á gripinn. Gamli kassinn myndi duga stærð sveitarfélagsins enn um stund, sá nýi er fullstór. En menn verða að hlýta reglum yfirkjörstjórnar. Ekki er leyfilegt að nota gamla kassann, reglurnar eru staðlaðar. Helgi opnaði fyrsta sinni nýja kassann og taldi hann vera úr Rúmfatalagernum. „Sá gamli er miklu fallegri.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kjördæmaskipan Fljótsdalshreppur Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fleiri fréttir Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Sjá meira