„Ekki hægt að réttlæta þessa ákvörðun“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 6. maí 2026 22:48 Boltinn fór í hönd Mendes en Laimer var dæmdur brotlegur. S. Mellar/FC Bayern via Getty Images Talsmenn Bayern Munchen eru mjög ósáttir við að hafa ekki fengið víti og að Nuno Mendes, leikmaður PSG, hafi ekki verið rekinn af velli í leik liðanna í kvöld.
Atvikin áttu sér stað í fyrri hálfleik þegar PSG var 1-0 (6-4) yfir. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en PSG fer áfram með 6-5 sigur úr einvíginu. Dómarinn Joao Pinheiro tók tvær stórar ákvarðanir í fyrri hálfleik. Fyrst ákvað hann að dæma ekki hendi á Nuno Mendes, heldur ákvað hann að fylgja fyrirmælum fjórða dómarans og dæma brot á Konrad Laimer rétt áður. Svo ákvað hann að dæma ekki vítaspyrnu þegar Joao Neves fékk boltann í höndina í vítateig PSG. Bæjarar voru sérstaklega ósáttir við að sjá Nuno Mendes sleppa með handardóm og sitt seinna gula spjald. „Þetta gjörbreytir leiknum. Þetta er í fyrsta sinn sem ég hef séð fjórða dómara skipta sér af í svona atviki. Mér fannst þeir ekki vilja gefa honum seinna gula spjaldið. Það er mín tilfinning og ég er tilbúinn að segja það opinberlega. Stundum leita dómarar að ástæðum til að hafa ekki áhrif á það hvernig leikurinn sveiflast. Ég ætla ekki að ásaka hann um neitt, en mér finnst ekki hægt að réttlæta þessa ákvörðun,“ sagði Michael Ballack, fyrrum leikmaður Bayern, í útsendingu DAZN. Bæjarar voru mjög ósáttir að fá ekki vítaspyrnu þegar boltinn fór í hönd Joao Neves. Alex Grimm/Getty Images „Við tókum ranga ákvörðun í eitt eða tvö skipti. Einhver annar á vellinum gæti líka hafa tekið ranga ákvörðun í eitt eða tvö skipti. Fyrir mér átti seinna gula spjaldið að fara á loft. Þá hefði leikurinn endað öðruvísi,“ sagði Max Eberl, yfirmaður knattspyrnumála hjá Bayern, við BILD. Vitinha hreinsaði í hönd Joao Neves en ekkert var dæmt. sýn sport skjáskot
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira