Sjáðu markið sem skaut Arsenal áfram í úrslitaleikinn Aron Guðmundsson skrifar 5. maí 2026 21:39 Bukayo Saka fagnar marki sínu í kvöld Vísir/Getty Bukayo Saka batt enda á tuttugu ára bið Arsenal eftir sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu með sigurmarki liðsins gegn Atletico Madrid í undanúrslitum í kvöld.
Lokatölurnar í kvöld 1-0 sigur Arsenal og samanlagður 2-1 sigur í einvíginu. Það ætlaði allt um koll að keyra á Emirates leikvanginum í Norður-Lundúnum þegar að dómari leiksins flautaði til leiksloka. Við hæfi að uppaldi leikmaðurinn, sá sem bar fyrirliðabandið í liði Arsenal í kvöld, Bukayo Saka skyldi skjóta Skyttunum áfram í úrslitaleikinn. Saka var réttur maður á réttum stað þegar að frákastið eftir vörslu Jan Oblak frá Leandro Trossard datt fyrir fætur hans. Saka kom boltanum í netið. Markið afar dýrtmætt fyrir Arsenal og það má sjá hér: Klippa: Markið sem skaut Arsenal í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Arsenal mætir sigurvegaranum úr einvígi Bayern Munchen og Paris Saint-Germain í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu undir lok mánaðarins í Búdapest í Ungverjalandi. PSG leiðir einvígið gegn Bayern 5-4 fyrir seinni leik liðanna í Þýskalandi annað kvöld. Arsenal hefur aldrei unnið Meistaradeild Evrópu en einu sinni áður leikið til úrslita í keppninni. Það gerði liðið árið 2006 undir stjórn Arsene Wenger. Arsenal mætti þá Barcelona í úrslitaleiknum og laut þá í lægra haldi. Stuðningsmenn liðsins vona nú að núverandi leikmenn félagsins nái að rjúfa eyðimerkurgönguna í keppninni.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Arsenal FC Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Fleiri fréttir Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Sjá meira