Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 4. maí 2026 16:42 Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir íslensk heilbrigðisyfirvöld ekki hafa sérstakar áhyggjur af komu skemmtiferðaskipsins. Vísir/Arnar Sóttvarnalæknir segir það ekki áhyggjuefni að farþegaskip þar sem þrír eru látnir úr svokallaðri Hantaveiru muni koma hingað til lands samkvæmt núverandi ferðaáætlun þess. Heilbrigðisyfirvöld fylgist vel með stöðunni um borð og ljóst að þegar sé verið að bregðast við.
Greint hefur verið frá því að þrír farþegar á skemmtiferðaskipinu MC Hondius hafi látist vegna hantaveiru og er grunur um að fimm farþegar til viðbótar séu smitaðir. Skipið var á leið frá Argentínu til Grænhöfðaeyja þegar veikindi farþega gerðu vart við sig en skipið er nú við höfn við eyjarnar. Haldist ferðaáætlun skipsins óbreytt siglir það hingað til lands í lok mánaðar þar sem það á viðkomu í Keflavík, Breiðafirði, Ísafirði, Flatey og loks á Akureyri. Fylgist með stöðunni en setja sig ekki í sérstakar stellingar „Við fylgjumst með stöðunni og erum vakandi en það er engin ástæða fyrir okkur hér að bregðast sérstaklega við,“ segir Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir í samtali við Vísi. Enginn Íslendingur sé um borð og enginn sem tengist Íslandi og óljóst á þessum tímapunkti hvort för þess verði haldið áfram eður ei og þá hvort sömu farþegar sigli með skipinu. „Þarna er hægt að bregðast við og þrífa og sótthreinsa þannig að skipið geti uppfyllt öll skilyrði,“ segir Guðrún. Hún bætir því við að öll skip sem komi til Íslands þurfi að uppfylla kröfur heilbrigðisyfirvalda. Málið sýni fram á mikilvægi alþjóðasamstarfs í sóttvarnarmálum, vel sé fylgst með því af hálfu heilbrigðisyfirvalda. Þá skipti sköpum hvernig hantaveiran dreifist. „Það eru til yfir tuttugu afbrigði af þessari veiru. Við vitum ekki hvaða afbrigði er á ferð í þessu skipi en hún smitast fyrst og fremst frá dýrum, nagdýrum, rottum og músum, úr þeirra saur og þvagi og berst þannig til fólks. Einhver afbrigði geta borist á milli fólks en ekki öll, það er ekki aðalsmitleiðin.“ Veiran valdi helst þrennskonar veikindum, blæðandi hitaveirusótt, nýrnabilun og lungnaheilkennum og telur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin að síðastnefnda einkennið hafi komið upp meðal farþega um borð í MC Hondius. Veiran komst í fréttir á síðasta ári þegar Barbara Arakawa eiginkona Hollywood leikarans Gene Hackman lést úr veirunni. Guðrún segir meðgöngutíma sýkingar að jafnaði vera um tvær vikur og lengur. „Og þessi veira finnst meðal annars í Suður-Ameríku, og gæti hafa borist þaðan í þessa farþega, þó maður viti það ekki. Ég veit ekki til þess að þetta hafi greinst hér og það er ekki vitað til þess að þetta hafi greinst í dýrum hér á landi, enda tengist þetta gjarnan þrifum og umgengni. Það þarf alltaf að passa upp á allt svona, passa upp á þrif og umgengni, það vill enginn rottugang á sínu heimili eða nálægt matnum sínum, það er ástæða fyrir því, þessi dýr bera allskonar veirur.“
Skemmtiferðaskip á Íslandi Heilbrigðismál Hantaveirusmit um borð í MV Hondius Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Fleiri fréttir „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Sjá meira