Hantaveirusmit um borð í MV Hondius
Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Frönsk kona sem var um borð í hollenska skemmtiferðaskipinu Hondius er sögð lífshættulega veik og í gervilunga á sjúkrahúsi í París. Ellefu manns eru taldir hafa smitast í hópsýkingunni til þessa. Erlent 13.5.2026 07:42
Ekki mannúðlegt að halda farþegunum um borð Sóttvarnalæknir segir það ekki réttlætanlegt að láta gesti um borð í MV Hondius dvelja þar um borð vikum saman. Frá því á sunnudag hefur verið unnið að því að koma farþegum heim til sín. Innlent 12.5.2026 23:16
Staðan enn alvarleg fyrir farþega en lítil hætta fyrir almenning Embætti landlæknis segir stöðuna enn alvarlega fyrir þá sem hafa orðið fyrir áhrifum vegna hantaveirusmits en að áhætta fyrir almenning á ESB/EES-svæðinu sé áfram mjög lítil. Fleiri smit geti komið upp á næstu vikum. Innlent 12.5.2026 13:39
Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Allir farþegar MV Hondius hafa nú yfirgefið skipið, eftir að hantaveira kom upp um borð. Skipið hefur lagt úr höfn frá Tenerife og er á leið til Hollands. Frakki og Bandaríkjamaður greindust með hantaveiru eftir að hafa yfirgefið skipið og haldið heim. Báðir eru í einangrun. Erlent 12.5.2026 08:03
Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Yfirvöld í ferðamannabænum Ushuaia á syðsta odda Suður-Ameríku þræta fyrir að hópsýking hantaveiru eigi upptök sín í borginni. Argentínskir sérfræðingar telja mögulegt að veiran hafi borist í ferðamenn á vinsælum fuglaskoðunarstað í Ushuaia. Erlent 11.5.2026 07:38
Frakki sýndi veirueinkenni og allir fimm skikkaðir í einangrun Einn af þeim fimm frönsku ríkisborgurum sem fluttir voru af MV Hondius, farþegaskipinu þar sem hantaveirusmit braust út, er sagður sýna sjúkdómseinkenni. Farþegarnir fimm hafa verið skikkaðir í einangrun. Erlent 10.5.2026 17:52
Fallhlífastökkvarar aðstoða með hantasmit á afskekktri eyju Sjúkraliðar úr breska hernum stukku úr flugvél með fallhlífum yfir eyjunni Tristan da Cunha fyrr í dag til að koma breskum manni sem smitaðist af hantaveiru til hjálpar. Eyjan er ein sú afskekktasta og er mitt á milli Argentínu og Suður-Afríku á miðju Atlantshafi. Erlent 10.5.2026 14:15
„Lífið heldur bara áfram sinn vanagang“ „Við höfum engar áhyggjur af þessu fyrir okkur. Því að þetta er það öruggt með skipið. Lífið heldur bara áfram sinn vanagang.“ Erlent 10.5.2026 13:12
Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Skemmtiferðaskipið MV Hondius lagðist við höfn á Tenerife klukkan hálf sex í morgun og hafa fyrstu farþegar farið frá borði. Það hafði verið ágreiningur meðal yfirvalda allt fram á síðustu stundu um hvernig þetta ferli ætti að fara fram en höfnin var valin vegna þess hversu afskekkt hún er þrátt fyrir að vera nálægt flugvelli. Allir um borð skipsins hafa verið skimaðir og reyndust allir einkennalausir. Erlent 10.5.2026 08:58
Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar fullvissaði íbúa Tenerife um að hættan sem stafaði af skemmtiferðaskipinu MV Hondius sem leggur að landi þar á morgun eftir að hantaveira dró þar þrjá til bana, væri lítil og að enginn um borð sýndi einkenni. Erlent 9.5.2026 17:17
Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Myndir hafa verið birtar af hvunndeginum um borð í skemmtiferðaskipinu MV Hondius. Sex tilfelli hantaveiru hafa verið staðfest og þrír hafa látist af völdum veirunnar um borð í skipinu eftir að það lagði úr höfn í Argentínu í apríl. Erlent 9.5.2026 12:19
Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Dani sem var á leið til Færeyja með Norrænu var fluttur með sjúkraflugi þar sem heilsu hans hrakaði fljótt eftir að hann steig um borð í ferjuna. Á háskólasjúkrahúsinu í Óðinsvéum var staðfest að um hantaveiru væri að ræða. Erlent 9.5.2026 08:52
Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Hantaveirusmit sem upp kom um borð í skemmtiferðaskipinu MV Hondius er ekki upphaf heimsfaraldurs, að sögn heilbrigðisstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Heilbrigðisyfirvöld keppast nú við að rekja slóð fjölda fólks sem nýlega fór frá borði úr hollenska skipinu. Alls hafa þrír dáið vegna veirunnar og er talið að að minnsta kosti átta til viðbótar hafi smitast. Erlent 7.5.2026 20:34
Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Tugir farþega skemmtiferðaskipsins MV Hondius eru sagðir hafa farið frá borði á St. Helenu í Suður-Atlantshafi þó nokkrum dögum eftir að maður dó þar um borð. Sá hafði smitast af hantaveirunni en eiginkona hans dó skömmu síðar. Nú er mikið kapp lagt á að framkvæma smitrakningu í tengslum við þetta fólk. Erlent 7.5.2026 13:52
Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Hollenska skemmtiferðaskipið MV Hondius hefur nú lagt af stað frá Grænhöfðaeyjum til Kanaríeyja. Þremur einstaklingum var vísað frá borði áður en lagt var af stað af heilsufarsástæðum. Þau voru öll send til Hollands. Erlent 6.5.2026 23:11
Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Þrír farþegar skemmtiferðaskipsins MV Hondius hafa verið fluttir á sjúkrahús í Hollandi, samkvæmt yfirmanni Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Hantaveiran fór í dreifingu þar um borð á dögunum en þrír hafa látið lífið og að minnsta kosti fimm hafa veikst. Til stóð að sigla skipinu til Kanaríeyja en ekki hefur orðið að því enn, þar sem ráðamenn þar vilja ekki taka á móti skipinu. Erlent 6.5.2026 11:13
Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Áhöfn skemmtiferðaskipsins MV Hondius hefur fengið heimild til að sigla til hafnar á Kanaríeyjum, þótt enn sé óákveðið hvar skipið mun leggja að bryggju. Heilbrigðisráðuneyti Spánar segir að þegar þangað verði komið, verði áhöfn og farþegar skoðaðir, meðhöndlaðir og sendir heim í samstarfi við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina og Sóttvarnastofnun Evrópu. Erlent 6.5.2026 06:46
Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands Sóttvarnalæknir segir það ekki áhyggjuefni að farþegaskip þar sem þrír eru látnir úr svokallaðri Hantaveiru muni koma hingað til lands samkvæmt núverandi ferðaáætlun þess. Heilbrigðisyfirvöld fylgist vel með stöðunni um borð og ljóst að þegar sé verið að bregðast við. Innlent 4.5.2026 16:42
Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Þrír ferðalangar á skemmtiferðaskipi eru taldir hafa látist vegna smits af hantaveiru á skipinu. Einn liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi en umrætt skemmtiferðaskip mun leggja leið sína til Íslands seinna í mánuðinum. Erlent 3.5.2026 20:22