Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn Ágúst Orri Arnarson skrifar 2. maí 2026 21:50 Ítalinn ungi verður fyrstur af stað en Verstappen og Leclerc koma í kjölsoginu. Kimi Antonelli ökuþór Mercedes verður fyrstur af stað þegar Formúlu 1 kappaksturinn í Miami fer af stað annað kvöld. Max Verstappen fylgir honum fast eftir á Red Bull bílnum og freistar þess að vinna sinn fyrsta sigur á tímabilinu.
Formúla 1 er að hefjast aftur eftir fimm vikna frí og hingað til um helgina höfðu fyrirsagnirnar snúist um McLaren ökuþórana en efsti maður heimslistans minnti vel á sig í tímatökunni. Antonelli átti frábæran fyrsta hring í þriðju tímatökunni og það kom ekki að sök þó seinni hringurinn hefði farið úrskeiðis hjá Mercedes liðinu. Tíminn var nógu góður til að tryggja Antonelli fyrsta sætið. "Feels good!" 💪Kimi Antonelli clinches pole position with an impressive lap in Miami 😮💨#F1 #MiamiGP pic.twitter.com/pbR0Uxj5yr— Formula 1 (@F1) May 2, 2026 Antonelli var tveimur sekúndubrotum sneggri en Verstappen og þremur sekúndubrotum sneggri en Charles Leclerc hjá Ferrari. Liðsfélagi Antonelli hjá Mercedes, George Russell, verður fimmti af stað á eftir Lando Norris hjá McLaren. Lewis Hamilton verður svo sjötti af stað en Oscar Piastri hjá McLaren, sigurvegari sprettkeppninnar, lenti í bilun á rafgeymi og verður sjöundi af stað. Kimi Antonelli and Max Verstappen on the front row! 👀Here's your Miami Grand Prix starting grid ⬇️#F1 #MiamiGP pic.twitter.com/cH0yp8FKq4— Formula 1 (@F1) May 2, 2026 Formúlu 1 kappaksturinn í Miami hefst klukkan 19:30 annað kvöld og verður í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay.
Akstursíþróttir Mest lesið Fimmtán ára strákur skotinn til bana í miðjum leik fyrir mistök Fótbolti Knattspyrnukona drukknaði á leið í betra líf Fótbolti Svona er hægt að koma Infantino frá völdum Fótbolti Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Enski boltinn Infantino sagður biðla til Trump um hjálp Fótbolti Fundu hlauparann sem var týndur í 44 daga Sport UEFA hótar FIFA með lögsókn Fótbolti Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Golf Valur - Stjarnan | Hvoru megin er þynnkan? Íslenski boltinn Gaf puttann eftir að hafa skorað gegn Frey Fótbolti Fleiri fréttir Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Formúla 1 leitar til Evrópu ef stríðsátökin halda áfram Hamilton kvartar undan ákvörðunum Ferrari: „Þetta var frekar slæmt“ Ungverski kappaksturinn myndaður af forseta Norris kom sér aftur á sigurbraut Endurkoma Formúlu 1 til Malasíu staðfest vegna stríðsátaka Byrjar á ráspól eftir ótrúlegan lokahring Hefur fundið lausn á vandamálinu í Belgíu Keyrir gamla bíla til að viðhalda ást sinni á Formúlu 1 Antonelli aftur á sigurbraut eftir harða keppni Sjáðu árekstur Hamilton og Russell á fyrsta hring Hamilton klessti og Ferrari í kapphlaupi við tímann Verstappen breytir bílnum eftir tvo árekstra Fyrsti sigur Leclerc í tvö ár Ökumenn léku sér með Lego fyrir breska kappaksturinn Ætla að vinna saman til að reyna að skáka Antonelli Antonelli á ráspól en liðsfélagi hans fór í vegginn Antonelli skákaði Hamilton í sprettkeppninni Heldur áfram að vera hraðastur í Bretlandi Ökumenn hræddir um að verða batteríslausir á miðjum hring Sjá meira