Viðskipti innlent

Berjaya kveður Reykja­vík Natura og Hilton Nordica

Eiður Þór Árnason skrifar
Reykjavík Natura var áður rekið af Icelandair Hotels. 
Reykjavík Natura var áður rekið af Icelandair Hotels.  aðsend

Íslandshótel munu taka við hótelrekstri í húsnæði við Suðurlandsbraut og Nauthólsveg sem hefur hýst Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura. Samhliða því lætur Berjaya Hotels Iceland af rekstri hótelanna en malasíska fyrirtækið keypti hann af Icelandair Group árið 2019. Stjórnendur Íslandshótela hyggjast taka yfir ráðningarsamninga starfsfólks.

„Það er engin óvissa. Það er alveg klárt mál að við ætlum að endurráða fólkið til okkar,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, í samtali við fréttastofu. Þetta eigi við um allt starfsfólk sem vinni á hótelunum tveimur í dag. 

Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að sumir starfsmenn hafi verið uggandi eftir fund með stjórnendum í dag og óttast um atvinnuöryggi sitt eftir yfirtökuna þann 1. september. 

Enn ríkir óvissa um nöfn hótelanna eftir yfirtöku Íslandshótela þar sem Berjaya á vörumerkin Nordica og Natura, að sögn Davíðs. Hann telur þó líkur á því að hótelið við Suðurlandsbraut verði áfram rekið undir merkjum alþjóðlegu Hilton-keðjunnar.

Áður var greint frá því að leigusamningur fasteignafélagsins Reita, sem á húsnæðið, og Berjaya væri að renna út en fyrirtækið gæti nýtt sér forleigurétt. 

„Reitir hafa gert samkomulag við Íslandshótel um að nýr leigusamningur vegna hótelanna við Suðurlandsbraut 2 og Nauthólsveg 52 taki gildi þann 1. september næstkomandi. Nýr leigusamningur var undirritaður 10. apríl 2025 og nær til 17 ára. Með samkomulagi hefur núverandi leigutaki fallið frá forleigurétti sínum og leigutími hans verið framlengdur til 31. ágúst 2026,“ segir í tilkynningu frá Reitum til Kauphallar. 

Fasteignirnar séu samtals 26.500 fermetrar að stærð og ráðist verði í endurbætur á þeim sem feli meðal annars í sér endurnýjun á stórum hluta gistirýma sem séu samtals um 470 talsins. 

Íslandshótel eru stærsta hótelkeðja landsins og munu reka nítján hótel eftir yfirtökuna. Reitir áætla að árleg aukning tekna og rekstrarhagnaðar vegna leigusamninganna verði um 620 milljónir króna á fyrstu tveimur og hálfu ári leigutímans en um 720 milljónir króna eftir það.

Fréttin er í vinnslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×