Tveir handteknir vegna stórfelldrar líkamsárásar – One-way ticket í sænsku leiðina Davíð Bergmann skrifar 28. apríl 2026 17:01 „Tveir handteknir vegna stórfelldrar líkamsárásar.“ Við erum orðin jafn ónæm fyrir þessum fréttum og ef við hefðum verið bólusett gegn þeim eins og þegar við vorum að verjast Covid-19. Þetta er orðin hálfgerð síbylja, eins og drephundleiðinlegu lögin á Bylgjunni sem eru fyrir löngu runnin út á dagsetningu en óma samt stanslaust í bakgrunninum. Samt spyr fólk í kommentakerfunum eins og það hafi verið að vakna af þyrnirósarsvefni: „Hvað skyldi valda?“ Við sem höfum staðið í skotgröfunum með „olnbogabörnunum“ síðan 1994 þurfum ekki að spyrja. Við höfum horft á þetta hægfara lestarslys í þrjá áratugi á meðan þeir sem stýra landinu fínpússa glærusýningarnar sínar í fílabeinsturnum borgarinnar. Við erum á fullri ferð með one-way ticket í sænsku leiðina og það virðist enginn ætla að toga í neyðarbremsuna. 1. 3.000 týndar sálir og fátæktargildran Í desember 2022 voru 3.000 ungmenni (16–24 ára) hvorki í skóla né vinnu á höfuðborgarsvæðinu. Þegar hjól atvinnulífsins hægjast eykst þrýstingurinn. Þegar 70% þeirra sem eru á atvinnuleysisbótum eru af erlendum uppruna þá er það ekki vegna þess að fólk njóti þess að lifa í fátæktargildru, enginn velur það sjálfviljugur. Þetta er ekki tækifæri fyrir ungmenni sem hafa enga reynslu á vinnumarkaði verða áfram neðst í bunkanum í atvinnuumsóknunum 2. Innsogið og sýndarmennskan Stjórnmálamennirnir fara allir á innsogið þegar krakki er stunginn niðri í miðbæ, lýsa yfir „miklum áhyggjum“ og lofa aðgerðum. En um leið og blóðið er skolað af malbikinu hverfur áhuginn. Nú styttist í sveitarstjórnarkosningar en enginn talar um sóknarfærin sem liggja hjá stærsta vinnustað ungmenna á svæðinu, sem varð 25 ára í síðasta mánuði. Þar væri hægt að grípa þessa krakka, en pólitíkin hefur engan áhuga. 3. Vopnavæðing og opin blæðing Á meðan pólitíkin sefur talar tölfræðin: Sérsveitin fer í tólf sinnum fleiri vopnuð útköll en fyrir áratug. Svörin? Meiri vígbúnaður. Fangelsiskerfið okkar er á meðan opin blæðing í kerfi sem er löngu dautt. Biðlistar eftir afplánun virka sem starfsnám í glæpum fyrir þá sem eiga enga aðra framtíð klukkan átta á morgnana. 4. Skólinn og handverkið sem hvarf Við útskrifum börn sem geta ekki lesið sér til gagns og vísum 1.000 iðnnemum frá á ári vegna „aðstöðuleysis“. Það er þægilegra að flytja inn ódýrt vinnuafl en að kenna íslenskum krökkum handverk. Afleiðingin er kynslóð sem finnur eina samfélagslega gildi sitt í hnífnum því enginn nennir að kenna þeim að halda á hamri. 5. Notum skruddur í skotgröfunum Reynslan hefur kennt mér að nánast allt sem snýr að þessum málaflokki hjá hinu opinbera er tóm froða. En auðvitað hljóta „sérfræðingarnir“ að vita betur, fólkið sem hefur aldrei dýft hendinni ofan í kalt vatn, hvað þá staðið í miðjum vígvelli undirheimanna þar sem hnífarnir eru dregnir hraðar upp en glærurnar á nefndarfundum. Það er merkilegt hvað hægt er að læra mikið um lífið af því að lesa bækur í háskóla á meðan maður passar að fá ekki blek á fingurna. Þar er svörin víst öll að finna, snyrtilega flokkuð í kafla og neðanmálsgreinar, á meðan við „vitleysingarnir“ á götunni mælum árangurinn í blóðdropum á gangstéttum og fjölda tómra augna sem við mætum á hverjum degi. Niðurstaðan: Við þurfum aðgerðir og við þurfum þær núna. Annars bíð ég ekki í þeirri framtíð sem er í vændum. Við erum á one-way ticket í sænsku leiðina og samferða því verður aukin stéttaskipting og harka. Það væri nær að hlusta á fólk sem er á vettvangi vígvallarins á hverjum degi og hefur jafnvel verið báðum megin við borðið. En hvað veit ég? Ég er bara búinn að vera í skotgröfunni síðan 1994. Maður er að verða úrkula vonar um að nokkuð breytist á meðan fólk sem hefur lesið skruddur í háskóla og pólitískir gæðingar fá að ráða ferðinni og leiðbeina okkur „vitleysingunum“ hvernig á að vinna á götunni. Höfundur starfar í Fjölsmiðjunni á höfuðborgarsvæðinu og er áhugamaður um betra samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Bergmann Mest lesið Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað kostar léleg umsýsla ríkissjóðs okkur í raun? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson skrifar Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Sjá meira
„
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar