Hólastóllinn Hjalti Pálsson skrifar 28. apríl 2026 11:00 Til allra velunnara Hólastaðar! Senn líður að ögurstund þar sem yfirvöld véla þessa stundina með fjöregg Háskólans á Hólum. Fram hafa komið hugmyndir um að selja Staðarhúsin, reisa stórar byggingar á Sauðárkróki til að hýsa þar starfsemi fiskeldisins ásamt yfirstjórn og skrifstofum skólans. Í mínum huga er augljóst hvaða afleiðingar sá gjörningur mun hafa, ef af verður, að flytja höfuðstöðvar skólans til Sauðárkróks og/eða Reykjavíkur. – Upphafið að endalokum Háskólans á Hólum. Heyrt hef ég ávæning af því, og telst varla lýðræðislegt ef satt er, að einhverjir aðilar tengdir Hólum hafi fengið ábendingar um að hafa sig hæga. Máli mínu til stuðnings langar mig að bregða upp til umhugsunar samlíkingu sem ég veit að allir muni vel skilja. Tökum einfalt dæmi af stól. Nærtækast að kalla hann Hólastól. Hann hefur staðið stöðugur á fjórum fótum. Einn er fótur biskupsstólsins, annar er fótur hestafræðideildar, þriðji er fótur ferðamáladeildar, fjórði er fótur fiskeldisfræðideildar. Ofan á stólnum er setan sem heldur öllum fótum saman. Það er að sjálfsögðu yfirstjórn háskólans og Staðarins. Nú er svo komið að einungis fótur hestafræðideildarinnar er enn heill og traustur. Biskupsfóturinn var orðinn valtur en virðist nú hafa endurheimt að nokkru sinn styrk. Fótur ferðamáladeildar er talinn ónauðsynlegur fyrir stólinn, kennslan fer að mestu fram á netinu og má stólfótur sá vera hvar sem er, en fótur fiskeldisdeildar hefur verið klofinn og verður væntanlega áfram. Sjálfa stólsetuna er þegar búið að taka og fara með á Krókinn. Og er svo að skilja að þar eigi hún að vera. Það ætti hverjum manni að vera ljóst hver örlög bíða stóls sem búið er að rífa af setuna og undan honum einn fótinn eða tvo. Beinagrindin á þá ekki langt eftir. Ég skora á alla velunnara Hóla að láta þetta dæmi stólsins ekki raungerast á Hólum. Vilji er það sem þarf. Ef oss sækja óláns flokkar eflast skal og hvergi dóla. Skyldi verða arfleifð okkar eyðilegging Hólaskóla? Með baráttukveðju. Hjalti Pálsson. Höfundur er fyrrverandi ritstjóri Byggðasögu Skagafjarðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skagafjörður Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Skoðun Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Sjá meira