Íþróttamannvirki Hveragerðisbæjar Einar Alexander Haraldsson skrifar 27. apríl 2026 21:00 Nú líður senn að sveitarstjórnarkosningum og eðlilega aukast greinaskrif og umræða um störf síðasta kjörtímabils. Slík umræða er mikilvæg, en hún þarf líka að byggja á heildarmynd og sanngirni því fjögurra ára kjörtímabil verður ekki gert upp í einni grein. Fyrir kosningarnar 2022 hafði D-listi verið í hreinum meirihluta í 16 ár. Eftir þær kosningar tóku Framsókn og Okkar Hveragerði við stjórn bæjarins og hafa farið með ábyrgðina síðan. Eitt stærsta verkefnið sem blasti við nýjum meirihluta var íþróttaaðstaða bæjarins eftir að loftborið íþróttahús (hér eftir íþróttahúsið) uppi í dal féll árið 2022. Íþróttahúsið hafði verið tekið í notkun árið 2012 og kostaði um 300 milljónir þá, um 525 milljónir á verðlagi dagsins í dag. Fall íþróttahússins var mikið áfall fyrir samfélagið þar sem það þjónaði mikilvægu hlutverki fyrir íþróttalíf bæjarins. Þessar breyttu aðstæður kölluðu á mikla vinnu allra sem komu að íþróttastarfi í bænum og gerir enn. Megið þið öll hafa miklar þakkir fyrir ykkar óeigingjörnu vinnu, sér í lagi þau ykkar sem hafa staðið í þessu í sjálfboðastarfi. Ef við rekjum fundargerðir bæjarstjórnar í kringum þetta mál þá vildi þáverandi meirihluti meina að þau hefðu pantað nýjan dúk á íþróttahúsið og ætluðu að endurreisa það í þeirri mynd sem það var. Það var því óljóst í kringum kosningar hvað yrði og hvort nýkjörnir fulltrúar væru mögulega bundnir af ákvörðun fulltrúa fyrri meirihluta í málinu. Kom síðar á daginn umræddur dúkur hafði aldrei verið pantaður, þrátt fyrir fullyrðingar þáverandi bæjarstjóra um að svo hefði verið gert. Þá var heldur ekki nein gögn að finna í málaskrá bæjarins um samskipti þáverandi bæjarstjóra við Duol, framleiðanda dúksins og þegar óskað var eftir þeim gögnum var því ekki svarað. Þetta kallaði á nýtt mat og nýja nálgun. Við það mat kom í ljós að ýmsir annmarkar höfðu verið á íþróttahúsinu. Skýrslur bentu til þess að ending og styrkleiki dúksins væru ekki eins og vænst hafði verið. Þá voru líka uppi ýmis álitamál um hvort að íþróttahúsið væri að virka sem skyldi, en það var eitthvað um að æfingar féllu niður vegna veðurs, hitastig inni hentaði ekki öllum íþróttum sem þar voru stundaðar og einhverjir kvörtuðu undan vanlíðan vegna loftþrýstings. Þá var gervigrasvöllurinn ekki nógu stór fyrir eldri flokka til að keppa. Það var því alveg ljóst að íþróttahúsið, lyftistöngin sem það var á sínum tíma fyrir iðkendur íþrótta í Hveragerði var mörgum ókostum gætt. Þess má einnig geta að íþróttahúsið hafði verið í um 10 ár, var nokkuð þétt setið en engin áform voru uppi um frekari uppbyggingu íþróttainnviða á þeim tíma. Það var því niðurstaða nýs meirihluta að horfa til varanlegri og heildstæðari lausnar fyrir íbúa Hveragerðisbæjar. Það var ekki einföld ákvörðun, enda var ljóst að um stórt og kostnaðarsamt verkefni væri að ræða. Skoðaðir voru mismunandi kostir, meðal annars að byggja á grunni íþróttahússins, en tilboð reyndust langt yfir kostnaðaráætlunum. Að lokum var ákveðið að fara í stækkun íþróttahússins við Skólamörk, sem er nú áætluð á um 900 milljónir króna. Það er mikilvægt að viðurkenna að ferlið hefur tekið tíma og biðin hefur verið erfið fyrir marga. Það er skiljanlegt. Verkefni er engu að síður umfangsmikið og krafðist vandaðrar undirbúningsvinnu. Nú er verkefnið komið á skrið og stefnt er að því að ný aðstaða verði tilbúin haustið 2027. Þá má einnig vekja athygli á því að fyrirhugað var að á vormánuðum myndi ný og glæsileg gervigrasaðstaða fyrir fótboltaiðkun vera tekin í notkun. Við skrif þessarar greinar bárust þær fregnir að skemmdarverk hafði verið unnið á undirlagi vallarins. Okkur í Framsókn þykir þetta mjög dapurt mál og algjörlega óskiljanlegt að einhver geri svona en það átti einungis eftir að leggja sjálft grasið á undirlagið. Framkvæmdin mun því tefjast eitthvað, en við krossum fingur að það verði óverulegur tími og aðstaðan verði komin í gagnið eins fljótt og auðið er. Hvað fáum við fyrir vikið? Viðbygging íþróttahússins við Skólamörk verður varanleg og traust íþróttaaðstaða sem byggir á þörfum samfélagsins til framtíðar. Aðstaða sem er staðsett við grunnskólann og nýtist betur börnum og ungmennum í daglegu lífi. Við munum ekki fara sofa eitt kvöldið og vakna að morgni þar sem megin íþróttaaðstaða bæjarbúa verður fokin út í veður og vind. Við fáum mannvirki sem stenst íslenskar aðstæður og veitir öryggi og stöðugleika til lengri tíma. Það er stórt skref fram á við fyrir íþróttalíf í Hveragerði. Höfundur situr í 2. sæti á lista Framsóknar í Hveragerði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hveragerði Framsóknarflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Halldór 12.09.2026 Halldór Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar