Innlent

Konan á­kærð fyrir mann­dráp á Edition

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Fólkið fannst látið á Edition hótelinu.
Fólkið fannst látið á Edition hótelinu. Vísir/Anton Brink

Frönsk kona hefur verið ákærð fyrir að hafa myrt dóttur sína á Edition-hótelinu í Reykjavík síðasta sumar. Eiginmaður konunnar fannst einnig látinn á hótelherberginu.

Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari, í samtali við fréttastofu.

Farbann konunnar rann út í dag og var því tekið upp á ný nú eftir hádegi. Farbannið var framlengt á meðan málaferlar fara fram en líkt og kom fram var konan ákærð fyrir manndráp.

Þann 14. júní 2025 fundust frönsk feðgin látin á hótelherbergi á Edition-hótelinu í miðborg Reykjavíkur. Eiginkona og móðir hinna látnu játaði á vettvangi að hafa drepið þau, hefði svo ætlað að svipta sig lífi en ekki lokið við ætlunarverk sitt. Síðan þá hefur konan breytt afstöðu sinni og neitar sök.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með málið til rannsóknar og lauk henni þann 20. janúar. Héraðssaksóknari tók þá til skoðunar hvort tilefni væri til að gefa út ákæru á hendur konunni. Málið var hins vegar aftur sent til lögreglu þann 24. febrúar, sem rannsakaði málið aftur þar til í lok mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×