Berum höfuðið hátt áfram Ingólfur Sverrisson skrifar 26. apríl 2026 08:02 Á sama hátt og einstaklingar geta orðið hjárænulegir og utangátta þegar þeir kynoka sér við að ræða við aðra vegna minnimáttarkenndar verður það stundum líka hlutskipti heilla þjóða. Þær enda þá gjarnan einangruð samfélög sem aðrir horfa til af vorkunnsemi vegna einstæðingsskapar og útúrboruháttar. Enn verra er þó þegar sömu þjóðir eru af þessum sökum ekki færar um að bjóða þegnum sínum kjör og lífsviðurværi eins og fullvalda þjóðir, sem vinna saman með öðrum, og geta með þeim hætti nýtt mátt samtaka til að ná lengra en þeir sem óttast nána samvinnu með öðrum þjóðum. Þetta staðfestir farsæl þátttaka Íslands í EES-samstarfinu við Evrópusambandið (ESB) sem flestir eru sammála um að hafi bætt lífskjör hér á landi til muna. Um þetta er varla deilt lengur enda þótt leifar umræðunnar lifi enn frá því við ákváðum að taka þátt í þessu ágæta samstarfi með staðfestingu á Alþingi fyrir þremur áratugum. Þegar nú hefur aftur verið fært í tal að skoða möguleika fyrir Ísland að gerast aðilar að ESB án nokkurra skuldbindinga fyrirfram er hrópað á móti því en þó af mismunandi ástæðum sem jafnvel stríða hver á móti annarri. Nýlega skrifaði minn gamli félagi úr Möðruvallahreyfingunni, Ólafur Ragnar Grímsson, að sjávarútvegsstefna ESB sé orðin svo flókin að hún skapi erfiðleika í daglegum rekstri. Því standi sambandið frammi fyrir því að skapa einhverja nýja stefnu sem enginn veit hver verður og því allt í lausu lofti á þeim bæ. Svo fullyrða hinir ranglega að ef við verðum með fulla aðild að ESB geti hver sem er frá löndunum vaðið inn á fiskimið okkar og veitt að vild. Með öðrum orðum annaðhvort óstjórn eða yfirgangur myndi mæta okkur ef við færum inn í ESB með fullum réttindum og skyldum. Þess vegna eins gott að ræða alls ekkert við þetta fólk en einbeita sér þess í stað að því að vera minni máttar með hausinn ofan í bringu. Auðvitað er alls ekki hægt að taka þetta neikvæða tal alvarlega einkum þegar þess er gætt að maður eins og Costas Kadis sjávarútvegsstjóri ESB hefur bent á að þess séu fjölmörg dæmi úr fyrri samningaviðræðum að tekið hefur verið tillit til sérkenna umsóknarríkja. Hægt er að vitna í fleiri ummæli af þessu tagi frá forystumönnum ESB en þetta látið nægja. Aðalatriðið stendur eftir, að nú er eingöngu verið að taka afstöðu til þess hvort við höldum áfram og ljúkum samningaviðræðum um fulla aðild að ESB. Þegar þeim lýkur og samningur liggur fyrir verði aftur leitað til þjóðarinnar sem tekur þá endanlega afstöðu um fulla aðild eða ekki. Þá vegur þjóðin það og metur hvort væntanlegur samningur er okkur hagstæður eður ei. Fyrr er með öllu óraunhæft að fullyrða nokkuð, sama hverju leiðtogar fortíðarinnar halda fram enda eru þeir einasta að giska á eitthvað sem hvorki þeir eða aðrir hafa vissu fyrir. En að ætla sér að sleppa því tækifæri að ræða við forystufólk ESB og fá niðurstöður út úr því er álíka gáfulegt eins og að treysta sér ekki til að ræða við nágranna sína um hversdagsleg málefni fyrir hræðslu sakir og heimóttarskapar. Hvað halda menn að gerist? Óttast fólk einhverskonar umsátursástand nágranna okkar úr Evrópu, þeir muni ganga berserksgang gagnvart landi og þjóð á meðan fulltrúar okkar ræða við þá um hugsanlega fulla aðild að ESB? Kennir reynslan okkur það? Nei, auðvitað ekki. Við sem einstaklingar og þjóð höfum í meginatriðum átt ágæt og farsæl samskipti við Evrópubúa og engin ástæða til að óttast nokkuð þó við göngum með þeim í þetta sameiginlega verkefni sem er í raun einasta að tala saman og kanna málið - enda deilum við sömu grunngildum. Til þess er allt of mikið í húfi, sérstaklega fyrir unga fólkið sem á eftir að erfa landið og við viljum auðvitað öll að hafi það sem allra best. Það verður hins vegar ekki gert með því að mála þjóðina út í horn af ótta við viðmælendur okkar; slík framkoma er ekki samboðin fullvalda þjóð og myndi skáka okkur til hliðar í alþjóðasamstarfi og skerða lífskjör til langrar framtíðar. Þess vegna mun þjóðin áfram bera höfuðið hátt eftir að hafa samþykkt fulla aðild að ESB og upptöku evrunnar. Leggja jafnframt margt gott og jákvætt til í samstarfinu svo lífskjör og mannréttindi á Íslandi og í Evrópu verði öðrum heimshlutum til fyrirmyndar hér eftir sem hingað til. Höfundur er eftirlaunaþegi og fyrrum forstöðumaður samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingólfur Sverrisson Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar