Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Agnar Már Másson skrifar 25. apríl 2026 15:28 JNIM, sem eru hliðhollir al-Qaeda, hafa haslað sér völl í Malí á undanförnum árum. Hér á mynd eru vissulega vígamenn úr FLA. AP Íslamistasamtök í samvinnu við uppreisnarmenn úr röðum Túarega virðast hafa gert samhentar árásir víða í Malí í Vestur-Afríku í morgun, meðal annars á höfuðborg landsins. Um er að ræða vinasamtök hryðjuverkahópsins al-Qaeda, en þau eru sögð reyna að steypa ríkisstjórn landsins af stóli.
Sprengingar og skothríð heyrðust í Bamakó, höfuðborg Malí, í morgun þegar fylking vígahópa gerði, að því er virðist, samhæfðar árásir í borginni. Herinn í Malí sagðist í yfirlýsingu fyrr í dag standa í orrustum við ónafngreind „hryðjuverkasamtök“ víða um landið. Unnið væri að því að hrekja uppreisnarmennina á brott. Einnig var greint frá óeirðum í Gaó í Austur-Malí og Kidal í Norður-Malí. Herforingjastjórn rændi völdum í Malí 2020 og stýrir landinu enn í dag. Uppreisnarhópur Túarega í Malí sem kallast Þjóðfrelsisfylking Azawad (e. Azawad Liberation Front, FLA) er sagður hafa lagt undir sig borgina Kidal gervalla og hluta borgarinnar Gao. Þessu heldur Mohamed Elmaouloud Ramadane, talsmaður hópsins, fram í Facebook færslu en þetta hefur ekki verið staðfest. Ramadane brýnir fyrir stjórnvöldum í nágrannaríkjunum Búrkína Fasó og Níger að blanda sér ekki í átökin í Malí. Bandarísk stjórnvöld hafa fordæmt árásirnar. Visual confirmation of the FLA capturing the National Youth Camp of Kidal, in Kidal city. https://t.co/kjjSDRIM8m pic.twitter.com/MtPwEMN1Jk— Brant (@BrantPhilip_) April 25, 2026 Túaregar nefnist þjóðflokkur í norðvesturhluta Afríku sem teygir sig frá suðvesturhluta Líbíu til suðurhluta Alsír, Níger, Búrkína Fasó og jú, Malí. FLA hefur í gegnum árin barist fyrir sjálfstæði Azawad-héraðs í Norður-Malí en íslamistar hafa á undanförnum árum rutt sér til rúms innan hreyfingarinnar. Al Jazeera hefur eftir heimildramönnum innan hers landsins að vígamenn á vegum íslamistahreyfingarinnar Jama'at Nusrat al-Islam wal-Muslimin (JNIM) séu einnig grunaðir um óeirðir víða um landið. JNIM, sem eru hliðhollir Al-Qaeda, hafa haslað sér völl í Malí á undanförnum árum, sem og margar aðrar jíhadistahreyfingar, en samtökin eru í raun sögð stjórna stórum hlutum Malí og Búrkína Fasó. Heimildarmenn Al Jazeera segja að JNIM reyni steypa ríkisstjórninni af stóli. Svo virðist sem FLA og JNIM hafi gert samhæfða árás; FLA hafi einbeitt sér að norðurhluta borgarinnar á meðan JNIM hafi ráðist á borgir annars staðar í landinu. Í Malí, sem er í Vestur-Afríku, búa um 24,5 milljónir manns en landið hefur heyrt undir herstjórn síðan herinn gerði valdarán undir forystu Assimi Goïta hershöfðingja árið 2020. Vígahópar hafa lengi haldið til á Sahel-svæðinu svokallaða en þar er átt við þurrt svæði suður af Sahara-eyðimörkinni sem nær yfir þvera Afríku. Þar hafa þeir um árabil hagnast á óskráðum gullnámum, auk þess sem hóparnir skattleggja íbúa á yfirráðasvæðum sínum og fjármagna sig með ránum. Hóparnir fjármagna sig einnig með smygli á fíkniefnum og fólki, svo eitthvað sé nefnt. Hér vantar vissulega að merkja Malí, sem er stóra landsvæðið með landamæri norður af Búrkína Fasó og vestur af Níger. Kortið sýnir Sahelsvæðið svokallaða en þar hefur víga- og uppreisnarhópum vaxið ásmegin á undanförnum árum.Vísir/Grafík Fjöldi valdarána hefur orðið í Vestur-Afríku síðustu ár, meðal annars í Níger, Búrkína Fasó og nú síðast í Gíneu-Bissau, og hafa herforingjastjórnir ítrekað vísað í uppgang þessara íslamistahópa þegar þær hrifsa völdin og heitið því að taka á þessum málum fastari tökum. Aftur á móti hafa herforingjastjórnir í Afríku að undanförnu vísað á brott hermönnum frá Bandaríkjunum og Frakklandi og þess í stað þegið aðstoð Rússa við að berjast gegn öflugum víga- og uppreisnarhópum sem eru virkir þar og annars staðar á Sahel-svæðinu. En eftir að Jevgení Prígósjín, eigandi málaliðahópsins Wagner, lést hefur staða Rússa í Afríku versnað töluvert. Nýi málaliðahópur Rússa, Afríkudeildin, sem rekinn er af varnarmálaráðuneytinu hefur ekki skilað sama árangri og Wagner-sveitirnar gerðu á sínum tíma, hvorki með tilliti til hagnaðar né áhrifa.
Malí Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira