Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ Valur Páll Eiríksson skrifar 23. apríl 2026 16:06 Aron Sigurðarson skoraði tvö og lagði annað upp að auki í dag. Vísir/Anton Brink Aron Sigurðarson var besti maður vallarins í frábærri frammistöðu KR sem vann 6-2 stórsigur á ÍBV á Hásteinsvelli í Bestu deild karla í fótbolta í dag. Þrátt fyrir það var pirringur ofar gleði eftir leik.
KR var með öll völd á vellinum á Hásteinsvelli í dag og gekk hreinlega frá Eyjamönnum í fyrri hálfleik. Staðan í hléi var 4-0 og sá fjögurra marka munur var síst of stór. Sóknarleikur KR var hreinlega óstöðvandi. „Við vitum alveg að við getum skorað mörk ef við erum on it. Við vorum það í fyrri hálfleik og skorum fjögur. Ef sá gallinn er á okkur getum við skorað fullt á stuttum tíma. En það sem svíður mest eftir þennan leik er að fá á sig tvö. Það er algjör óþarfi,“ sagði Aron eftir leik. Aðspurður frekar um frammistöðu liðsins og sigurinn var ljóst að mörkin tvö sem Eyjamenn skoruðu voru honum ofar í huga en sex mörk KR-ingar. „Þetta eru tvær góðar frammistöður núna back to back. Það er jákvætt, það er hægt að byggja ofan á þetta. Það koma leikir í bunkum núna. Tveir flottir leikir, góðar frammistöður og fullt af mörkum en við þurfum ekki að fá þessi mörk á okkur. Það er eitthvað til að bæta,“ „Við þurfum ekki að detta í svona kæruleysi. Kannski er þetta eitthvað sem við þurfum að bæta andlega, að halda áfram að keyra á leiki. Það er rauði þráðurinn eftir þessa tvo leiki,“ segir Aron en KR fékk einnig á sig tvö mörk seint gegn Þór í síðustu umferð. Þeim leik lauk 5-2 eftir að KR hafði komist 4-0 yfir. KR er hins vegar efst í Bestu deild karla með níu stig eftir þrjá leiki og markatöluna 14-6.
KR Besta deild karla ÍBV Mest lesið UEFA logar í ljósi áforma Infantino: „Sál fótboltans ekki til sölu“ Fótbolti Gylfi ósáttur: „Ótrúleg ákvörðun hjá KSÍ“ Sport Besti handboltamaður heims fór í markið Handbolti Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Enski boltinn Kröfur umboðsmanns Salah valda vandræðum Fótbolti Sölvi keyptur til KR Íslenski boltinn Tókst á við stjörnurnar í La Liga en heldur nú til Þórs Íslenski boltinn „Ekki það sem við lögðum upp með“ Íslenski boltinn Sjáðu Ágúst Orra tryggja Breiðabliki sigur og viðhalda ótrúlegri tölfræði Íslenski boltinn Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna Körfubolti Fleiri fréttir „Ekki það sem við lögðum upp með“ Sara Björk leitar enn fyrsta sigursins Njarðvík marði botnliðið Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík/Njarðvík 0-0 | Fer seint í sögubækurnar Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 1-1 | Botnliðið náði í stig Tókst á við stjörnurnar í La Liga en heldur nú til Þórs Sölvi keyptur til KR „Frábær leikmaður og skemmtilegur karakter sem við munum sakna“ Sjáðu Ágúst Orra tryggja Breiðabliki sigur og viðhalda ótrúlegri tölfræði Freyja seld til Svíþjóðar Valdi tíu verstu augnablik Stjörnumanna á Skaganum: „Eins og þeir væru drukknir“ Dagskráin í dag: Bikarúrslitaliðin í eldlínunni „Góðir tímar framundan“ „Hefði nú verið betra að vera með tvo sigra“ „Mjög ánægður með margt í leiknum en óánægður með jafntefli“ Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Fyrirliði Njarðvíkur til Vals Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-0 | Ágúst Orri hetjan Aðstoðarþjálfari Jökuls í Vesturbæinn „Við eigum harma að hefna“ Sjáðu mörkin þegar ÍA kjöldró Stjörnuna Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Jóhannes Karl: Strákarnir eiga skilið frí yfir helgina Uppgjörið: ÍA-Stjarnan 5-1 | Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Uppgjörið: FH-Fram 0-0 | Mörg mörk síðast en ekkert í kvöld Kláraði Harvard og samdi við Blika Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Sjá meira