„Blóðmassinn svartur sem hel“ Jakob Bjarnar skrifar 22. apríl 2026 11:41 Guðni Ágústsson velur hinu nýsjálenska lambastykki, sem hann segir hafa verið flutt til Íslands 18 þúsund kílómetra með tilheyrandi kolefnisfótspori, hina verstu orð. vísir/aðsend/vilhelm Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra og einn helsti talsmaður íslenska lambakjetsins, rak upp stór augu þegar hann átti leið um Costco-búðina í Garðabæ nýverið. Þar rakst hann á nýsjálenskt lambastykki sem honum leist síður en svo á. „
Þetta nýsjálenska lambalæri hefur verið flutt um 18 þúsund kílómetra og er boðið neytendum á niðursettu verði í Costco. Blóðmassinn svartur sem hel. Viðbjóðsleg vara,“ segir Guðni forviða. Hann telur þetta vart boðlegt. Skammist ykkar gráðugu og ósvífnu menn „Enginn kaupir þetta nema þá til að setja í sterkt karrí. Í næsta borði var glæsilegt vel framreitt íslenskt lamb, vel merkt og girnilegt. Hvaða aulum dettur þetta í hug, að setja annað eins og þetta inn í þann helgidóm sem er eitt besta lamb heimsins, framleitt með lyng- og villibráðarbragði?“ Skammist ykkar gráðugu og ósvífnu menn, segir Guðni Ágústsson.vísir/vilhelm Guðni spyr áfram: „Hverjum er verið að þjóna og hvert er kolefnissporið? Skammist ykkar gráðugu og ósvífnu menn. Hverjir standa fyrir þessum innflutningi?“ Gefur ekkert fyrir orð Ólafs Stephensen Guðni hefur upp á síðkastið tekist á við Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda, en þeir standa í eins konar ritdeilu á síðum Morgunblaðsins. Guðni segist ætla að svara Ólafi á næstu dögum á þeim vettvangi en í síðustu grein sem Ólafur sendi til birtingar og finna má á síðu Félags atvinnurekenda heldur hann því fram að í síðasta tollkvótaútboði hafi fyrirtækið Háihólmi verið eitt þeirra fyrirtækja sem fengu mestan kvóta til að flytja inn lambakjöt, eða tæplega 93 tonn. Guðni segir Ólaf ljúga því að Kaupfélag Skagfirðinga flytji inn lambakjöt. Þeir sóttu vissulega um en þeir hleyptu aldrei af.vísir/ívar fannar „Það er á almannavitorði að Háihólmi er leppur fyrir Kaupfélag Skagfirðinga. Fyrirtækið skaut upp kollinum í tollkvótauppboðum eftir að aðalfundur KS ályktaði að kaupfélagið og dótturfélög þess ættu ekki að stunda innflutning landbúnaðarafurða. Fyrirtækið er sagt í eigu innkaupastjóra Esju Gæðafæðis, dótturfélags KS,“ segir Ólafur og hann hnýtir við meinlegri athugasemd: „Það ættu nú að vera hæg heimatökin hjá Guðna að hringja í Þórólf fóstra sinn kaupfélagsstjóra og spyrja hvort hann, af öllum mönnum, sé genginn af trúnni á íslenzka lambið,“ segir Ólafur. Spurður út í þetta atriði segir Guðni þetta skrök og lygimál sem framkvæmdastjórinn beri á borð. „Hann er nú ekki betur að sér í guðfræði, kristnum fræðum eða siðfræði en svo að hann reynir að ljúga því á Þórólf kaupfélagsstjóra að hann flytji inn lambakjöt. Hvorki Háihólmi né Esja hafa flutt inn lambakjöt. Þeir njóta þess að selja það íslenska. Þeir hafa aldrei flutt inn lambalæri til Íslands. Þeir sóttu eitt sinn um en þetta er eins og að eiga skammbyssu og hleypa svo aldrei af,“ segir Guðni viss í sinni sök.
Félagasamtök Lambakjöt Verslun Landbúnaður Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Sjá meira