Ég ætlaði mér aldrei að verða leikskólakennari Ásta Möller Sívertsen skrifar 21. apríl 2026 19:30 Fyrir rúmum áratug síðan lauk ég BA-gráðu í þýsku og ætlaði í framhaldi af því að leggja stund á meistaranám í þýðingafræði. Mig vantaði starf og það lá því beinast við að sækja um tímabundið starf í leikskólanum í næsta húsi. Á fyrsta degi í starfi stökk ég út í djúpu laugina og skildi ekki til hvers var ætlast af mér. Engir tveir dagar í leikskólanum voru eins en fjölbreytileiki starfsins til viðbótar við samskipti við starfsfólk og börn heillaði mig. Mér varð ljóst að starfið krefst þess að geta lesið í aðstæður og að geta brugðist við þörfum barnanna, á sama tíma. Það leið ekki á löngu uns ég áttaði mig á því að ég vildi öðlast skilning á þeim fræðum sem móta leikskólastarf og sýn á börn. Ég vildi geta tekið faglegar ákvarðanir og fært rök fyrir þeim með hliðsjón af fræðunum. Ég vildi verða leikskólakennari. Ég sótti því um meistaranám í menntunarfræði yngri barna að höfðu samráði við þáverandi leikskólastjóra. Námið er ætlað þeim sem hafa annað grunnnám en leikskólafræði og vilja bæta við sig þekkingu í leikskólakennarafræði og útskrifast sem leikskólakennari. Í náminu fékk ég tíma og rými til að fara á dýptina í samtali við samnemendur og kennara. Þar lærði ég að ígrunda starfshætti mína, setja orð á eigin reynslu og tengja hana við fræði. Þar lærði ég líka að skilja fagmennskuna sem lá að baki því sem ég hafði upplifað, hvers vegna það er mikilvægt að geta lesið í aðstæður og brugðist við þörfum barnanna á sama tíma. Ég þróaði með mér rannsakandi hugarfar og samhliða því mótaðist fagleg starfskenning mín. Í meistaranáminu fékk ég tækifæri til að tengja á milli fræða og vettvangs og eflast sem fagmaður. Ég varð leikskólakennari. Í umræðu um lágt hlutfall leikskólakennara hefur því verið varpað fram að stytta megi nám þeirra. Í ljósi eigin reynslu dregur sú hugmynd úr mikilvægi fagmennsku og gæða í starfi með börnum. Leikskólakennarar vita hvenær á að setjast á gólfið til að vera í augnhæð við börnin og hvers vegna það er mikilvægt. Þau skilja einnig mikilvægi þess að tala við börnin á meðan þau klæða sig í útiföt, ásamt því að veita þeim nægan tíma til daglegra athafna. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og starf leikskólakennara krefst fagmennsku sem byggir á faglegri ígrundun, faglegu sjálfstrausti og getu til að taka ákvarðanir með hagsmuni barnanna að leiðarljósi. Fagmennska leikskólakennara þróast í gegnum nám sem miðar að því að brúa bilið á milli fræða og vettvangs. Í því ferli fá nemendur tíma til að dýpka skilning sinn og þróa faglega hæfni. Slíka þekkingu og færni er ekki hægt að tileinka sér á skömmum tíma. Í dag starfa ég sem aðjunkt á Menntavísindasviði Háskóla Íslands samhliða doktorsnámi mínu. Í doktorsannsókn minni beini ég sjónum að því hvernig unnið er að því að efla fagmennsku og gæði í leikskóla. Í hlutverki mínu sem háskólakennari finn ég fyrir faglegri ábyrgð gagnvart verðandi leikskólakennurum. Það felst mikil ábyrgð í því að mennta verðandi leikskólakennara og styðja þau í að móta faglega hugsun og sjálfsmynd. Ég hef séð að það tekur tíma og að slík sjálfsmynd verður ekki til í skyndi. Ég sé nemendur eflast sem faglega leiðtoga sem þróa eigin starfshætti og gera breytingar sem stuðla að umbótum í starfi. Ég tek þátt í þeirri vegferð með samtali og endurgjöf sem miðar að því að dýpka skilning þeirra og styrkja faglega sjálfsmynd. Á vettvangi sá þau fræjum sem styðja við aukna fagmennsku í daglegu starfi. Það hefur bein áhrif á gæði leikskólastarfs og þar með á tækifæri barna til náms og þroska. Fagmennska leikskólakennara byrjar að mótast í náminu og heldur áfram að þróast alla starfsævina. Það er ekki nóg að byggja leikskóla til að tryggja börnum pláss. Við verðum að tryggja þeim faglegt leikskólastarf þar sem leikskólakennarar eru í forystu og leiða starfið með hagsmuni barnanna að leiðarljósi. Höfundur er stoltur leikskólakennari, doktorsnemi og aðjunkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Leikskólar Börn og uppeldi Mest lesið Hvenær verður nóg nóg? Borgar Antonsson (Boggi Tona) Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson Skoðun Hver ber kostnaðinn þegar landinu er lokað? Friðrik Árnason Skoðun Fimm mínútur sem geta skipt sköpum í neyð Birna G. Magnadóttir Skoðun Dýnamík hópeineltis, hóphegðun fína og ófína fólksins Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Danski bærinn Akureyri Gunnar Salvarsson Skoðun Ferðaþjónustan gerir Ísland skemmtilegra Ragnhildur Ágústsdóttir Skoðun Er þetta allt sama tóbakið? Ólafur Stephensen Skoðun Skoðun Skoðun Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnun gervigreindar og öryggi Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Reikningurinn sem svefninn getur ekki borgað Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Er þetta allt sama tóbakið? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Danski bærinn Akureyri Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Píeta samtökin í 10 ár Hildur Eir Bolladóttir skrifar Skoðun Fimm mínútur sem geta skipt sköpum í neyð Birna G. Magnadóttir skrifar Skoðun Hvenær verður nóg nóg? Borgar Antonsson (Boggi Tona) skrifar Skoðun Hvað merkir íslenskt nei? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Meðaltalið borgar ekki húsaleiguna Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Geta stofnanir sparað og bætt þjónustuna? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver ber kostnaðinn þegar landinu er lokað? Friðrik Árnason skrifar Skoðun Dýnamík hópeineltis, hóphegðun fína og ófína fólksins Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir skrifar Skoðun Umferð í Reykjavík og samgönguásar höfuðborgarsvæðisins Elías B Elíasson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Hvar liggja mörk sjálfræðis? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ferðaþjónustan gerir Ísland skemmtilegra Ragnhildur Ágústsdóttir skrifar Skoðun Um helmingur lækna á Landspítala í fullu starfi Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar