Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Freyja Þórisdóttir skrifar 21. apríl 2026 09:32 Jón Pétur Zimsen er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóri. Kvöldævintýri tók óvænta stefnu þegar Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ásamt öðrum lenti í sjónum fyrir utan Kjalarnes. Þá höfðu þeir róið út á tveimur kajökum að veiða en lent í vandræðum með pedalspaðana og velt báðum bátunum. Þeim var bjargað úr sjónum eftir rúman hálftíma og þakkar Jón bæði björgunarsveitinni og bráðamóttökunni fyrir góð viðbrögð.
Þessu greinir hann frá í færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í gær en þar segir hann einnig frá því að það hafi verið tveir björgunarsveitarmenn á „sæköttum“ eða jet-ski sem sóttu þá félagana og komu þeim á þurrt land. „Vorum orðnir kaldari en mig óraði fyrir, mældur líkamshiti 32 gráður. En með öruggum handbrögðum tók það ca 30 mínútur að koma okkur upp í 37 gráður undir hitateppum og með volgt innrennsli í æð,“ segir einnig í færslunni. Virkilega þakklátir Jón þakkar fyrir afbragðs móttökur á bráðamóttökunni og segir þá hafa verið útskrifaða um klukkustund eftir komuna þangað. Kvika, hundurinn hans Jóns, hafi verið ægilega glöð að fá þá heim. Þeir hafi byrjað kvöldið í björgunarvestum en endað í ákaflega „nýmóðins spítalaklæðnaði“. Þá minnir hann á að slysin geri ekki boð á undan sér en að „þá sé gott að búa á Íslandi þar sem þrautþjálfað fólk, bæði í sjálfboðavinnu og á spítölunum, er til staðar þegar við þurfum á því að halda“. Að lokum þakkar hann öllum sem „komu að þessu brasi þeirra“ og segir þá báða vera mjög þakkláta.
Björgunarsveitir Reykjavík Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira