Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Eiður Þór Árnason skrifar 18. apríl 2026 16:58 Donald Trump ávarpaði blaðamenn fyrr í dag. EPA Bandaríkjaforseti varar stjórnvöld í Íran við því að reyna að „kúga“ Bandaríkin með því að hætta við opnun Hormússunds. Yfirvöld í Teheran tilkynntu í gær að sundið yrði opið fyrir skipaumferð á meðan tímabundið vopnahlé Íran og Bandaríkjanna væri í gildi.
Í morgun mátti heyra annað hljóð í írönskum ráðamönnum þegar Hormússundi var skyndilega lokað aftur. Var vísað til áframhaldandi hafnarbanns Bandaríkjahers á svæðinu sem Íran telur klárt brot á vopnahléssamkomulagi ríkjanna. Bandaríkin segjast hafa komið í veg fyrir að 23 skip kæmust að Hormússundi eftir að herinn fór að framfylgja hafnarbanni sínu 13. apríl. Bandaríkjaher hyggst á næstu dögum fara um borð í olíuflutningaskip tengd Íran og leggja hald á kaupskip á alþjóðlegu hafsvæði. Þetta fullyrðir Wall Street Journal og hefur eftir bandarískum embættismönnum. Tveir íranskir bátar skutu á olíuflutningaskip á Hormússundi í dag og gámaskip varð einnig fyrir „óþekktum hlut,“ að sögn bresku sjóviðskiptastofnunarinnar (UKMTO). Indversk stjórnvöld hafa lýst því yfir að skotið hafi verið á tvö skip sem sigli undir indversku flaggi. Viðræður haldi áfram Donald Trump Bandaríkjaforseti ræddi stöðuna við fjölmiðla vestanhafs í dag og sagði enn mögulegt að komast að samkomulagi við Íran. „Þeir [Íranir] voru að vera svolítið krúttlegir, eins og þeir hafa gert í 47 ár,“ sagði Trump við fréttamenn um síðustu lokun Hormússunds. „Við erum í viðræðum við þá. Þeir vildu loka sundinu aftur – þú veist, eins og þeir hafa gert í mörg ár – en þeir geta ekki kúgað okkur.“ „Þetta gengur í raun mjög vel og við sjáum til, en við munum hafa einhverjar upplýsingar í lok dags,“ bætti Trump við. Um fimmtungur af olíuframleiðslu heimsins og fljótandi gasi er jafnan flutt í gegnum Hormússund sem er staðsett fyrir sunnan Íran en það hefur meira og minna verið lokað frá því að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran í febrúar. Hefur þetta haft mikil áhrif á alþjóðahagkerfið en einnig er stór hluti hráefna í áburðarframleiðslu fluttur um svæðið. Hafa hjálparstofnanir því varað við hættunni á fæðuskorti í þróunarríkjum. Kharg-eyja Hormússund JEMEN S.A.F. TYRKLAND SÝRLAND SÁDI-ARABÍA ÓMAN ÍRAK ÍRAN JÓRDANÍA EGYPTALAND LÍBANON ÍSRAEL KÚVEIT KÝPUR PALESTÍNA Kharg-eyja Teheran Hormússund BAREIN KATAR Fréttin hefur verið uppfærð.
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Tengdar fréttir Hormússundi lokað á ný Íranir hafa lokað Hormússundi á ný eftir að Bandaríkjaforseti neitaði að aflétta herkví á landið. Í kjölfar þess að opnað var fyrir umferð um Hormússund í gær ræddi Bandaríkjaforseti við fjölda blaðamanna og staðhæfði að Íranir hefðu samþykkt að gefa upp úranauðgunina sína. Orðin fóru illa í íranska ráðamenn sem saka forsetann um lygar. 18. apríl 2026 08:46 Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Olíuverð féll í dag eftir að stjórnvöld í Íran fullyrtu að Hormússundi yrði haldið opnu á meðan vopnahlé er í gildi. Sundið hefur formlega verið opnað fyrir umferð að sögn Bandaríkjaforseta og utanríkisráðherra Írans. Frakkland og Bretland hyggjast leiða alþjóðlega aðgerð sem miðar að því að halda sundinu opnu. 17. apríl 2026 21:42 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira
Hormússundi lokað á ný Íranir hafa lokað Hormússundi á ný eftir að Bandaríkjaforseti neitaði að aflétta herkví á landið. Í kjölfar þess að opnað var fyrir umferð um Hormússund í gær ræddi Bandaríkjaforseti við fjölda blaðamanna og staðhæfði að Íranir hefðu samþykkt að gefa upp úranauðgunina sína. Orðin fóru illa í íranska ráðamenn sem saka forsetann um lygar. 18. apríl 2026 08:46
Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Olíuverð féll í dag eftir að stjórnvöld í Íran fullyrtu að Hormússundi yrði haldið opnu á meðan vopnahlé er í gildi. Sundið hefur formlega verið opnað fyrir umferð að sögn Bandaríkjaforseta og utanríkisráðherra Írans. Frakkland og Bretland hyggjast leiða alþjóðlega aðgerð sem miðar að því að halda sundinu opnu. 17. apríl 2026 21:42