Vignir í dauðafæri og nýtir sér leynivopn á Íslandi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. apríl 2026 11:58 Vignir Vatnar Stefánsson er í 20. sæti mótsins og þarf líklega einn vinning í síðustu tveimur skákunum til að tryggja sér sæti á heimsmeistarmótinu. Vísir/Ívar Vignir Vatnar Stefánsson stórmeistari í skák er í tuttugasta sæti á Evrópumóti einstaklinga í skák eftir níu umferðir af ellefu. Fimm hundruð af öflugustu skákmönnum álfunnar taka þátt og er Vignir í dauðafæri að tryggja sér sæti á næsta heimsmeistaramóti. Hann keypti sér Batman-sokka í gær og er klár í slaginn.
Keppt er í pólsku borginni Katowice og var Vignir öllum að óvörum efstur á mótinu eftir sex umferðir með fimm og hálfan vinning. „Þetta var bara eitthvað rugl. Byrja með fimm og hálfan af sex og vera efstur þegar mótið er meira en hálfnað. Ég lagði tvo yfir 2600 stiga stórmeistara þarna í röð, einn fyrrverandi Evrópumeistara meira að segja og annar er líka ógeðslega góður. Já, það var dálítið geggjað,“ segir Vignir. Hann leyfði fylgjendum sínum á Instagram að skyggnast á bak við tjöldin hjá honum daginn sem hann lagði Evrópumeistarann. View this post on Instagram A post shared by Vignir Vatnar (@vignirvatnar) Tilfinningarússíbani Það getur verið skrýtin staða að vera meðal fimm hundruð bestu skákmanna álfunnar, í efsta sæti og tefla á efsta borði. Tilfinningarnar geta verið miklar og ekki fyrir hvern sem er að eiga við slíkt. Í kjölfarið fylgdu tvö töp í tveimur skákum og hrap niður stigatöfluna úr efsta sætinu. „Þetta er eitthvað sem kannski kemur líka dálítið með reynslunni,“ segir Vignir og lýsir skákinni sinni á efsta borði. „Í rauninni átti ég ekkert að tapa þeirri skák. Ég var algjörlega búinn að koma mér úr öllu veseni og við héldum bara að það stefndi í vinning á einum tímapunkti. Þannig að það var dálítið súrt að tapa henni,“ segir Vignir um skákina sem stóð yfir í margar klukkustundir. Svo fylgdi tap gegn atvinnustórmeistara áður en kom að frábærri serbneskri skákkonu á fimmtudag. „Ég reyndar tefldi eins og algjör flóðhestur en sem betur fer hafði ég skákina þannig að ég vann hana. Þetta er kúnst, getur verið erfitt en ég held að þetta komi líka með reynslunni. Ég er búinn að tefla í 18 ár þannig að það hlýtur að vera einhver reynsla þarna að baki.“ Keypti sér Batman-sokka Meðfram allri þeirri hugarleikfimi sem skákíþróttin felur í sér hefur Vignir lagt mikið upp úr því að rækta líkamlegt atgervi sitt enda geta skákirnar staðið yfir í marga klukkutíma þar sem augnabliksskortur á einbeitingu getur haft dramatísk áhrif á útkomuna. Hann nýtti langþráðan hvíldardag í gær vel með rækt og sánu. „Síðan náttúrulega erum við bara svona aðeins að fara yfir línur og kortleggja andstæðing minn sem er spænskur ofurstórmeistari. Þannig að maður er bara að reyna að undirbúa sig fyrir það sem maður getur. Ég reyndar fór í mollið líka og keypti mér Batman-sokka þannig að það var líka aðeins til að brjóta upp daginn.“ Leynivopn á Íslandi Vignir stendur ekki einn í því að kortleggja andstæðinga sína. Hann er með leynivopn heima á Íslandi sem hjálpar honum að fara yfir fyrri skákir mótherjanna. „Já, heldur betur. Það er hann Birkir Ísak Jóhannsson sem er nú hörkuskákmaður sjálfur og náði alþjóðlegum meistaraáfanga til dæmis um daginn. Við erum alltaf saman á netinu að spá í spilin, hvernig er best að taka þennan,“ segir Vignir. Þannig reyni þeir að sjá hvaða leið andstæðingurinn sé líklegur til að fara. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan árið 2018 þegar Vignir og Birkir tefldu þessa skák.Skáksamband Íslands „Þar eru margar skákir þar sem ég er alveg undirbúinn þannig séð upp í 15. leik eða eitthvað svoleiðis. Eitthvað sem er bara undirbúið hjá okkur deginum áður. Hann er bara alveg gríðarleg hjálp fyrir mig. Það er vel orðað að kalla hann leynivopn.“ Með svart gegn Íslandsvini Vignir er með svart í dag gegn spænska stórmeistaranum Jaime Santos Latasa sem er mikill Íslandsvinur og tefldi fyrir Taflfélag Vestmannaeyja á Íslandsmóti skákfélaga á tímabilinu. Vestmannaeyingar hugsa hlýlega til kappans sem leiddi félagið til fyrsta Íslandsmeistaratitils félagsins og það á hundrað ára afmæli þess. Jaime Santos hér þriðji frá vinstri þegar Eyjamenn hrósuðu sigri í mars. Þeir Vignir hafa oft mæst, oft hefur orðið jafntefli en sá spænski hafði betur á heimsmeistaramótinu í atskák á dögunum svo Vignir á harma að hefna. Sá spænski er í átjánda sæti mótsins en Vignir í því tuttugasta. Það er mikið í húfi og ekki að heyra að stress sé á okkar manni. „Maður er orðinn dálítið vanur þessu. Þetta er engu að síður ótrúlega stórt og mig langar bara til að sjá hvort þetta takist. Þetta var markmiðið að reyna að ná heimsbikarsæti og það er að takast hingað til. Þannig að við sjáum hvernig síðustu tvær ganga. Maður er bara vongóður og mætir undirbúinn.“ Uppfært klukkan 16:38 - Skákinni lauk með samkomulagi um jafntefli. Skákina má skoða hér fyrir neðan. Vignir segir skákina alltaf jafnskemmtilega þó að það sé vissulega munur á andlegu ástandi þegar maður hefur sigur í fimm tíma skák en þegar maður tapar. „Hún er alltaf jafn skemmtileg en þetta er orðið meira náttúrulega vinnan mín að einhverju leyti. Fólki finnst kannski ekki alltaf gaman í vinnunni sinni en flestum okkar finnst hún skemmtileg að miklu leyti. Þetta er ekki alltaf dans á rósum en þetta er partur af lífi mínu og hefur verið svo lengi, átján ár af 23 ára lífi. Það er magnað hvað ég er búinn að tefla lengi og þetta er bara partur af manni.“
Skák Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Sjá meira