Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Þórarinn Þórarinsson skrifar 18. apríl 2026 18:31 Guðrún Ósk er stolt af sveitarfélaginu sínu þar sem hinsegin fánar blöktu víða við í morgun. Til dæmis við ráðhúsið þar sem inngildandi framfarafáninn sem nær utan um allt LGBTQ+ litrófið var dreginn að húni. Mynd/Guðrún Ósk Strax í gærmorgun var búið að flagga hinsegin fánum um allan bæ, að sögn Hornfirðingsins Guðrúnar Óskar Gunnarsdóttur. Hún brást við ummælum Snorra Mássonar um regnbogafána í færslu sem hefur farið víða um Facebook. Var færslan einnig hugsuð til þess að fá fram viðhorf Miðflokksins sem býður fram í sveitarfélaginu í fyrsta sinn. „
Það er ekki saklaus skoðun þegar Snorri Másson gerir lítið úr sýnileika regnbogatákna í skólum,“ segir Guðrún Ósk sem í Facebook-færslu sinni segir viðhorf varaformanns Miðflokksins byggja á „úreltum hugmyndum um hverjir eigi að fá að vera sýnilegir í samfélaginu.“„Það að vera öðruvísi í litlu samfélagi getur verið erfitt. Regnbogafánar, regnbogastígar, regnbogahálsbönd og sýnileiki og stuðningur í skólunum okkar eru ekki áróður heldur merki um að samfélagið sé að reyna að vera öruggara og sanngjarnara fyrir alla. Á sama tíma senda þessi tákn einnig mikilvægt erindi til allra barna og ungmenna: að fjölbreytileiki sé eðlilegur og að enginn eigi að þurfa að fela hver hann er,“ skrifaði Guðrún Ósk á Facebook. Frábært samfélag „Okkur hefur alltaf verið tekið opnum örmum hér í sveitarfélaginu Hornafirði og ég hef ekki fundið fyrir neinum fordómum hér gagnvart mér og minni fjölskyldu,“ segir Guðrún Ósk í samtali við Vísi. Regnbogafáninn fyrir utan framhaldsskólann og þekkingarsetrið Nýheima á Hornafirði í morgun.Mynd/Guðrún Ósk „Ég og Sigga konan mín störfum báðar á leikskólanum og hér þekkjast auðvitað allir eða vita af hver öðrum þannig við erum bara venjuleg fjölskylda sem er partur af þessu frábæra samfélagi. Gott dæmi um það er að strax í morgun var hinsegin fánum flaggað um allan bæ, við ráðhúsið, framhaldsskólann, grunnskólann, sundlaugina, við Jökulsárlón og á fleiri stöðum. Íbúar settu líka margir myndir af sér á samfélagsmiðla með hálsbönd eða myndir af fánum! Þetta er samfélagið!“ sagði Guðrún í samtali við fréttamann í gær. Guðrún Ósk segist því ekki hafa orðið vör við að umkvartanir Snorra á þingi hefðu haft merkjanleg áhrif á Hornafirði. Þvert á móti jafnvel því síðdegis í gær birti Miðflokkurinn á Hornafirði mynd af blaktandi regnbogafánum á Facebook-síðu sinni. Guðrún Ósk segir í samtali við Vísi að þegar hún kom „út úr skápnum“ 2015 hafi hinseginleikinn ekki verið mjög áberandi á svæðinu. „Þeir fáu sem höfðu komið opinberlega út úr skápnum á þeim tíma bjuggu ekki lengur hér og hinsegin fyrirmyndir voru því fáar.“Hún segir þetta blessunarlega hafa breyst í dag og fólk virðist lítið vera að tilkynna kynhneigð sína. „Það byrjar bara í sambandi með þeim sem það er skotið í, eins og það á að vera,“ segir hún brosandi. Hún rifjar síðan upp hvernig „það var að vera ung stelpa með leyndarmál og það að sjá svona fána gerði mig alltaf svo glaða og velkomna, lét mig fyllast von og spenningi.“ Henni er þó einnig enn í fersku minni þegar „talað var illa um þessi tákn, hlegið að fólki sem bar þau og notað niðrandi orðræðu. Þá hafi henni ekki liðið vel sem hinsegin manneskju í „felum“.Guðrún Ósk lýkur færslu sinni með því að lýsa stolti yfir því að „tilheyra sveitarfélagi sem einmitt keypti regnbogahálsbönd fyrir starfsfólkið sitt, flaggar hinsegin fánanum og málar regnbogastíg!Ég vona innilega að það verði þannig áfram og að þeir sem bjóði sig hér fram til að vera í forsvari fyrir sveitarfélagið deili ekki þessum „málstað“, ef málstað má kalla,“ skrifar hún og þá væntanlega ekki síst með frambjóðendur Miðflokksins í huga.
Málefni trans fólks Hinsegin Sveitarfélagið Hornafjörður Miðflokkurinn Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira