Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Ágúst Orri Arnarson skrifar 17. apríl 2026 08:31 Vignir Vatnar tefldi til vinnings úr erfiðri stöðu. Vísir/Ívar Vignir Vatnar Stefánsson sneri upp á sókndjarfan Evrópumeistara og náði í mikilvægan sigur í níundu umferðinni á Evrópumóti Taflfélaga.
Vignir Vatnar mætti hinni serbnesku Teodoru Injac, alþjóðlegum meistara sem er ríkjandi Evrópumeistari kvenna frá því í fyrra. Injac tókst hins vegar ekki að klára leikinn eftir góða byrjun og Vignir Vatnar sneri taflinu. „Vignir lenti gjörsamlega í köðlunum gegn agressífri taflmennsku hinnar sókndjöfru serbnesku valkyrju Teodoru Injac. Eftir erfiðara byrjun vaknaði Vignir til lífsins, varðist harðri sókn og náði að snúa dæminu eftir að Teodora hafnaði þráskák og tefldi til vinnings,“ segir í frábærri umfjöllun um viðureignina á heimasíðu Skáksambandsins. Þar er farið ítarlegar yfir skákina og sókn Evrópumeistarans á Vigni Vatnar sem vaknaði og varðist valkyrjunni. Vignir sneri þannig aftur á sigurbraut eftir töp í tveimur umferðum þar á undan. Hann hafði setið einn í efsta sæti mótsins eftir 6 umferðir, en tapaði stöðunni í 7. og 8. umferð. Vignir Vatnar er nú með 6.5 vinning eftir 9 umferðir og er númer 74 í stigaröðinni. Stefnan er sett á sigra í síðustu tveimur umferðunum, sem gætu komið honum upp í topp tuttugu sæti og gefa þátttökurétt á HM einstaklinga. Andstæðingar Vignis Vatnars í síðustu tveimur umferðunum liggja ekki enn fyrir. Frídagur verður haldinn í dag en lokaskákirnar verða tefldar á morgun og sunnudag. Nánari upplýsingar eru á heimsíðu mótsins og hjá Skák.is. Alls taka 501 skákmenn þátt á mótinu og eru íslensku keppendurnir fjórir. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2512) er númer 74 í stigaröðinni, stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2414) er númer 154 í stigaröðinni, alþjóðlegi meistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2297) er númer í 256 stigaröðinni og Josef Omarsson (2045) er númer 400 í stigaröðinni. Stigahæstur er Igor Kovalenko (2685) frá Úkraínu.
Skák Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Sjá meira