Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Árni Sæberg skrifar 16. apríl 2026 15:30 Ragnar Freyr Ingvarsson, formaður Læknafélags Reykjavíkur. Stöð 2/Ívar Fannar Læknafélag Reykjavíkur lýsir yfir furðu og vonbrigðum með ákvörðun Landspítala að leggja niður stöðu Ragnars Freys Ingvarssonar, formanns LR. Félagið telur uppsögnina ólögmæta og áskilur sér rétt til að leita réttar síns.
Ragnar Freyr greindi frá því síðustu viku að honum hefði verið sagt upp störfum á Landspítalanum. Hann var í nokkurra mánaða launalausu leyfi en starfaði annars í þrjátíu prósenta starfshlutfalli. Uppsögnin vakti mikla athygli enda hefur verið fjallað mikið um læknaskort á spítalanum. Ólögmæt uppsögn Læknafélag Reykjavíkur, sem Ragnar Freyr hefur gegnt formennsku í undanfarin ár og hefur meðal annars vegna þess verið í hlutastarfi á spítalanum, hefur nú sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins. „Læknafélag Reykjavíkur lýsir yfir furðu og vonbrigðum með ákvörðun Landspítala Háskólasjúkrahúss að leggja niður starf formanns LR. Þá hefur komið fram að í raun er ekki verið að leggja starfið niður heldur sé í raun um ólögmæta uppsögn að ræða.“ Rök Rafns haldi ekki vatni Þá rekur félagið að Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans, sem beri ábyrgð á uppsögninni, hafi í fjölmiðlum lýst því að ástæða niðurlagningar starfsins sé rík aðhaldskrafa og lágt starfshlutfall formannsins. „Sú ástæða stenst ekki skoðun ef hærra starfshlutfall er samt sem áður í boði. Formaður LR er í trúnaðarstöðu sem hagsmunagæslumaður stærsta hóps lækna í hlutastarfi við LSH. Vinnuveitandi hefur lagalega aukna skyldu um rökstuðning fyrir uppsögn trúnaðarmanns auk þess sem samráð við viðkomandi stéttarfélag er skilyrði áður en til aðgerða af þessu tagi er gripið. Hvorugt var virt í þessu tilviki.“ Stjórn LR líti svo á að brotið sé gegn félagsmönnum LR þegar gengið er fram með þessum hætti af hálfu LSH. Vernd trúnaðarmanna sé hornsteinn íslensks vinnumarkaðar. Veikist sú vernd hafi það víðtækar afleiðingar fyrir réttindi starfsmanna og fyrir starfsemi stéttarfélaga. Fylgja málinu eftir Loks segir að Læknafélag Reykjavíkur krefjist eftirfarandi: Lagður verði fram fullnægjandi rökstuðningur fyrir ástæðum þess að staða formanns LR hefur verið lögð niður. Upplýst verði með hvaða hætti samráð fór fram. Sýnt verði, með óyggjandi hætti, fram á að niðurlagning starfsins tengist með engum hætti og sé óháð trúnaðarmannshlutverki formanns LR. „Stjórn LR mun fylgja þessu máli eftir og áskilur sér allan rétt til að grípa til viðeigandi lagalegra úrræða.“ Undir bréfið ritar Katrín R. Kemp Guðmundsdóttir, varaformaður Læknafélags Reykjavíkur, fyrir hönd stjórnarinnar.
Landspítalinn Mannauðsmál Vinnumarkaður Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira