Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Árni Sæberg skrifar 16. apríl 2026 13:05 Kristján Ásmundsson hefur starfað við FS í fjóra áratugi en hefur nú fengið nóg. Fjölbrautaskóli Suðurnesja Kristján Ásmundsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur sagt af sér embætti þrátt fyrir að eiga eitt ár eftir af fimm ára skipunartíma sínum. Ástæðan er óánægja með húsnæðismál skólans og að menntamálaráðuneytið hafi engar ákvarðanir tekið varðandi úrbætur.
Þetta segir í tilkynningu á vef FS. „Kristján hóf störf við skólann árið 1986 og er því að ljúka 40. starfsári sínu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Kristján tilkynnti starfsfólki skólans ákvörðun sína í fundartíma í morgun. Starfsfólki var mjög brugðið við þessar fréttir og felldu margir tár. Kristján hefur verið farsæll stjórnandi við skólann til fjölda ára og notið virðingar og vinsælda meðal starfsfólks.“ Með þrjá gáma og leigja á tveimur stöðum Þar er haft eftir Kristjáni að hann hafi verið á fundi með starfsfólki menntamálaráðuneytis í morgun um fyrirhugaða viðbyggingu við skólann. Ákvörðun um viðbyggingu fyrir verk- og starfsnám við fjóra framhaldsskóla hafi tekin fyrir tveimur árum en á fundinum með ráðuneytisfólki hafi komið fram að engar ákvarðanir hafi verið teknar um tímasetningu eða annað varðandi viðbyggingu við skólann. Inga Sæland er barna- og menntamálaráðherra.Vísir/Anton Brink „Því er ljóst að skólinn þarf að bíða enn um sinn eftir úrbótum varðandi húsnæði fyrir verk- og starfsnám en einnig bóknám og aðstöðu fyrir nemendur og starfsfólk. Skólinn nýtir nú þrjá lausa gáma sem kennslustofur og leigir húsnæði á tveimur stöðum í bæjarfélaginu fyrir kennslu. Einnig er búið að breyta geymslum í kennsluaðstöðu og breyta bóknámsstofum í verklega aðstöðu.“ Telur nóg komið Í skólanum sé mjög stór starfsbraut og mikill fjöldi nemenda með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn. Skólastarfið sé því mjög fjölbreytt og mikilvægt fyrir samfélagið á Suðurnesjum. Nú þegar farið sé að þrengja að á öllum sviðum varðandi húsnæði skólans sé aðstöðuleysi farið að hafa veruleg áhrif á skólastarfið og starfsemi skólans. „Kristján telur nóg komið og hefur ákveðið að hætta störfum við skólann. Hann telur að hann komist ekki lengra með þetta mál og harmar áhugaleysi stjórnvalda á málefnum skólans.“
Skóla- og menntamál Framhaldsskólar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Húsnæðismál Reykjanesbær Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira