Sport

„Þurftum bara að taka sénsa í dag og það var ekkert í heiminum að fara breytast“

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Hilmar Pétursson í baráttunni
Hilmar Pétursson í baráttunni Paweł/Vísir

Keflavík tryggði sér oddaleik á laugardaginn gegn Val með frábærum sjö stiga sigri í kvöld 88-81. Hilmar Pétursson leikmaður Keflavíkur ræddi við Andra Már Eggertsson eftir leik.

„Það er auðvelt að peppa sig upp fyrir svona leik eftir að frændi manns hittir sigurkörfu í grillið á manni“ sagði Hilmar Pétursson eftir sigurinn í kvöld.

„Við þurftum bara að taka sénsa í dag og það var ekkert í heiminum að fara breytast, Ormasundið yrði ennþá lokað og það er bara æfing á morgun“

Keflavík leiddi nær allan leikinn og voru aldrei undir í kvöld.

„Ég held að varnarleikurinn hafi skilað þessum sigri. Hann skapaði auðveldan sóknarleik og svo áttum við bara Remy Martin inni þegar hann kom loksins“

Það var allt að smella hjá Keflavík í kvöld og aðrir hlutir sem höfðu ekki verið að falla fyrir þá í hinum leikjunum.

„Við þurfum bara að fara hitta betur og við eigum það klárlega inni. Við áttum Remy Martin inni sem að var bara geðveikt og vonandi bara getum við klárað þetta á sunnudaginn. Ég man ekki hvenær næsti leikur er en á sunnudaginn held ég“

Valur hótaði endurkomu í fjórða leikhluta og minnkaði muninn niður í sex stig en Keflavík lét það ekki slá sig út af laginu.

„Þetta var eiginlega bara að halda einbeitingu og mér finnst við búnir að vera að gera þetta svolítið síðustu leiki að vera yfir eða koma til baka og missa þá svo fram úr okkur“

„Þeir eru bara með frábært lið og það er erfitt að keppa á móti svona liði en vonandi eigum við bara inni einn geggjaðan sóknarleik þar sem við skorum kannski betur en þrjátíu prósent í þristum“ sagði Hilmar Pétursson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×