„GusGus gera sexý lög og Birnir er einfaldlega sexý beast“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 16. apríl 2026 08:01 Söngvarinn Margrét Rán Magnúsdóttir í GusGus og rapparinn Birnir sem syngja saman lagið „Walk Away“. Raftónlistarsveitin GusGus gaf á miðnætti út lagið „Walk Away“ með rapparanum Birni. Síðast gáfu þau út saman slagarann „Eða?“ sem var eitt vinsælasta lag ársins 2023. Nýja laginu lýsa þau sem nostalgískri framtíðartónlist
GusGus segir lagið hluta af áframhaldandi vegferð sveitarinnar þar sem hún hefur, allt frá útgáfu Mobile Home, leitað leiða til að „draga fram anda níunda áratugarins í nýju samhengi, að staðsetja reifið í einhvers konar hliðarveruleika, þar sem fortíð og framtíð mætast í sama takti.“ „Tónlistin sem þar verður til er erfitt að skilgreina með hefðbundnum hætti. Kannski mætti kalla hana nostalgíska framtíðartónlist; hljóðheim sem sækir í fortíðina en horfir samt óhikað fram á við,“ segir Biggi Veira í GusGus. Lagið sé meira en bara lagasmíð að mati sveitarinnar því í heimi sem virðist sífellt óstöðugri sé mikilvægara en nokkru sinni að rækta reifið: „rými þar sem fólk kemur saman, sleppir tökunum og finnur sameiginlegan takt.“ Lagið má hlusta á hér að neðan: „Kannski er það einmitt einn heilbrigðasti staðurinn sem eftir er á þessari jarðkringlu; eins konar samningavettvangur fyrir bjartari framtíð,“ bætir Biggi Veira við. GusGus heldur áfram þeirri stefnu, næst með stórtónleikum í Laugardalshöll þann 30. maí næstkomandi. Af hverju fenguð þið Birni til liðs við ykku? „Svarið er einfalt: GusGus gera sexý lög og Birnir er einfaldlega sexý beast. Hann er vinur sveitarinnar og okkur þykir afar vænt um hann, svo það lá beinast við að fá hann með í lagið,“ segir Biggi. „Í laginu mætast systkini í sérstökum hljóðheimi. Á vissan hátt snýst lagið um systkinasamband þeirra, en það er jafnframt speglað inn í einhvern framtíðarheim, þar sem tilfinningar, tengsl og fjarlægðir fá nýja merkingu,“ bætir hann við.
Tónlist Tónleikar á Íslandi Tengdar fréttir Birnir og GusGus með sumarteknósmell Teknóhljómsveitin GusGus og rapparinn Birnir sameina krafta sína í nýju lagi, sannkölluðum sumartekósmelli, sem ber nafnið Eða? 7. júlí 2023 09:42 Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Lífið „GusGus gera sexý lög og Birnir er einfaldlega sexý beast“ Tónlist Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Fleiri fréttir „GusGus gera sexý lög og Birnir er einfaldlega sexý beast“ „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Laufey Lín sló í gegn á Coachella Myndaveisla: Skagarokk haldið í fyrsta skipti síðan 1994 Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Sautján þúsund miðar seldir á Kaleo Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Sex þúsund miðar seldust upp á innan við mínútu Barnsleg gleði, kynþokki og óhugnaður Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar „Þú munt verða stórkostleg söngkona“ Söguleg stund í KR heimilinu Falinn gjóður vann Músíktilraunir Segist skilin út undan vegna MAGA-tengingar sinnar Elegans og elskhugar í eftirpartýi hjá Laufeyju Óvæntustu deilur ársins: „Ég hata ekki börn“ Jay-Z breytir um nafn... aftur Laufey sigursælust og Todmobile heiðruð Birnir fær gullplötu fyrir Dyrnar Hringdu kannski-stjarnan orðin mamma Áhrifamestu augnablikin í Kórnum: Flókin líkamsímynd, Bieber-aðdáun og sungið á íslensku Herra Hnetusmjör er söngvari ársins „Takk fyrir mig Ísland, mitt draumaland“ Myndaveisla: Töfrandi stemning á stórtónleikum Laufeyjar Boy George keppir fyrir San Marínó Hollt að sinna húsverkum og fá engin hrós Opna Laufeyjarverslun fyrir tónleikana „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Sjá meira
Birnir og GusGus með sumarteknósmell Teknóhljómsveitin GusGus og rapparinn Birnir sameina krafta sína í nýju lagi, sannkölluðum sumartekósmelli, sem ber nafnið Eða? 7. júlí 2023 09:42