Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Árni Sæberg skrifar 15. apríl 2026 11:30 Menntaskólinn á Egilsstöðum, með Árna í fararbroddi, vann verðlaun sem Stofnun ársins árið 2022 í flokki stofnana með 40-89 starfsmenn. Sameyki Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt lista yfir umsækjendur um þrjú embætti skólameistara, sem auglýst voru laus til umsóknar þann 19. mars síðastliðinn. Meðal tveggja umsækjenda um embætti skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum er núverandi skólameistari skólans, sem heyrði í fréttum að staða hans yrði auglýst.
Embættin voru auglýst laus til umsóknar þann 19. mars síðastliðinn með umsóknarfresti til og með 9. apríl. Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættin til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefnda, að því er segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Í tilkynningunni segir að eftirfarandi umsóknir hafi borist um embætti skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum: Árni Ólason, skólameistari Tinna Kristbjörg Halldórsdóttir, félagsfræðingur og framhaldsskólakennari Kom ekki á óvart Árni er núverandi skólameistari skólans en hann heyrði af því í útvarpsfréttum í desember að til stæði að auglýsa stöðu hans. „Ég fékk að heyra hjá ráðherra í útvarpinu að það ætti eftir að taka einn enn fyrir. Ég vissi að það væri ég. Ef það ætti að fara í þetta leikrit á annað borð þá þýðir ekki að gera A og svo ekki B. Þetta kom mér ekkert á óvart.“ sagði hann í samtali við Vísi á sínum tíma. Ársæll reynir ekki aftur Málefni skólameistara menntaskóla voru mikið til umræðu í desember í fyrra eftir að embætti skólameistara Borgarholtsskóla var auglýst en ákvörðun þess efnis var sögð þvert á allar hefðir. Ársæll Guðmundsson, sem gengt hafði embættinu í fimm ár, hefur þegar látið af embætti og sótti ekki um endurnýjaða skipun. Hann íhugar nú að stefna ríkinu vegna málsins. Samkvæmt tilkynningu bárust eftirfarandi umsóknir um embættið: Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir, settur skólameistari Harpa Jörundardóttir, framhaldsskólakennari og sérfræðingur Rektorinn kominn til borgarinnar Þriðja embættið sem auglýst var laust til umsóknar er embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð. Einn fimm umsækjenda hefur verið settur rektor frá því að Steinn Jóhannesson söðlaði um og tók við starfi sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Umsækjendurnir fimm eru eftirfarandi: Andri Guðmundsson, framhaldsskólakennari Harpa Jörundardóttir, framhaldsskólakennari og sérfræðingur Helga Jóhannsdóttir, settur rektor Magnús Hlynur Haraldsson, framhaldsskólakennari og brautarstjóri Maren Davíðsdóttir, framhaldsskólakennari og deildarstjóri
Skóla- og menntamál Mál skólameistara Borgarholtsskóla Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Framhaldsskólar Múlaþing Reykjavík Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira