Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Kjartan Kjartansson skrifar 14. apríl 2026 13:39 Begoña Gómez með Pedro Sánchez, spúsa sínum, í opinberri heimsókn í Kína í gær. Vísir/EPA Rannsóknardómari í Madrid hefur ákært Begoñu Gómez, eiginkonu Pedro Sánchez forsætisráðherra Spánar, fyrir fjárdrátt og misferli. Ásakanirnar tengjast stöðu Gómez hjá háskóla í höfuðborginni.
Gómez er ákærð fyrir fjárdrátt, misferli með opnibert fé , spillta viðskiptagjörninga og að notfæra sér aðstöðu sína sem eiginkona forsætisráðherra. Það er hún sögð hafa gert þegar hún fékk styrktaraðila til þess að fjármagna meistaranám við Complutense-háskóla í Madrid sem hún hafði umsjón með. Aðstoðarkona Gómez og kaupsýslumaður hafa einnig verið ákærð í tengslum við málið, að sögn breska blaðsins The Guardian. Þau hafa öll neitað sök. Málið kom til kasta rannsóknardómarans eftir kvörtun frá fjarhægrisamtökum sem kalla sig Hreinar hendur (sp. manos limpias). Sánchez forsætisráðherra hefur ítrekað fullyrt að málið eigi sér pólitískar rætur. Hann hefur meðal annars dregið hlutlægni dómstóla í efa og íhugaði alvarlega að segja af sér vegna málsins gegn Gómez fyrir tveimur árum. Dómarinn veitti Gómez og hinum tveimur sem eru ákærð fimm daga frest til þess að bregðast við. Í framhaldinu verður tekin ákvörðun um hvort réttað verði yfir forsætisráðherrafrúnni.
Spánn Erlend sakamál Mest lesið Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fleiri fréttir Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Sjá meira