Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Þórarinn Þórarinsson skrifar 15. apríl 2026 07:02 Mæðginin Sidonie og Manuel biðu í tæp fjótán ár eftir að fá tækifæri til að þakka fjórum ungum mönnum sem með óvæntu inngripi urðu til þess að faðir hans rétt náði að vera viðstaddur fæðingu hans. Mynd/Aðsend „Við Manuel erum ótrúlega þakklát fyrir að pabbi hans hafi náð að vera viðstaddur fæðingu hans,“ segir Sidonie Schmitt sem vissi ekki hvaðan á hana stóð veðrið þegar hún var í miðri fæðingu, fyrir tæpum fjórtán árum, þegar fjórir ungir menn dúkkuðu óvænt upp með barnsföður hennar rétt áður en drengurinn kom í heiminn.
Manuel fermdist um helgina en í fermingarundirbúningnum segist Sidonie hafa hugsað aftur til dagsins þegar drengurinn fæddist og „lítils góðverks“ sem skipti hana miklu máli og hún aldrei fengið tækifæri til að þakka almennilega fyrir.Sidonie, sem er af frönskum ættum og tók upp nafnið Saga Rún þegar hún varð íslenskur ríkisborgari, segir Manuel hafa legið talsvert á að koma í heiminn sem aftur varð til þess að faðir hans tók í fáti heldur undarlega ákvörðun.„Þegar mamma mín hringdi í pabba hans og sagði honum að hann þyrfti að koma strax á fæðingardeildina tók hann frekar óvænta ákvörðun. Af einhverjum ástæðum, sem ég skil ekki enn, ákvað hann að hlaupa á fæðingardeildina í stað þess að fá far,“ segir Sidonie sem telur hann sennilega hafa verið sannfærðan um að fljótlegast væri að fara þvert yfir borgina á hlaupum.„Á leiðinni stoppuðu nokkrir strákar og spurðu hvort allt væri í lagi og þegar þeir áttuðu sig á hvað var í gangi buðu þeir honum strax far á spítalann. Þökk sé þeim náði hann rétt í tæka tíð.“ Fimm menn og einn faðir Sidonie segist því miður aldrei hafa fengið tækifæri til þess að þakka strákunum sjálf fyrir ómetanlega greiðviknina. „Enda var ég aðeins upptekin þetta kvöld. Þetta var bara mjög fyndið. Ég var þarna að reyna að fæða barn þegar ljósmóðirin kom bara og sagði að það væru fimm menn þarna niðri og spurði hver væri faðirinn. Ég skildi auðvitað ekki neitt en þetta var mjög skemmtilegt.“ Þótt hvunndagshetjurnar fjórar hafi ekki komist í fermingarveisluna er Manuel glaður og feginn að hafa loks fengið að þakka mönnunum sem urðu óvænt til þess að faðir hans var viðstaddur fæðingu hans.Mynd/Aðsend Hún segist hafa heillengi hugsað með sér að hún þyrfti að hafa uppi á strákunum og þakka þeim persónulega. Hún hafi síðan verið að taka saman myndir af Manuel fyrir fermingarveisluna þegar hún fann eina af bjargvættunum óvæntu á fæðingardeildinni og þá áttað sig á að þessi tímamót í lífi sonar hennar væru upplagt tilefni til þess að reyna að finna þá aftur. Þakklát mæðgin „Ég hugsaði þá að nú væri komið besta tækifærið til þess að reyna að finna þá,“ segir Sidonie sem birti myndina á Facebook í von um að þar myndi einhver þekkja þá eða jafnvel að þeir sjálfir myndu reka augun í myndina.Hún notaði Facebook-færsluna einnig til þess að bjóða strákana meira en velkomna í fermingarveisluna enda vildu mæðginin gjarnan hitta þá og fá að þakka þeim almennilega. „Ef ekki, þá vil ég bara að þið vitið að það sem þið gerðuð þetta kvöld hefur skipt miklu máli fyrir ungan mann og mömmu hans.“Viðbrögðin létu ekki á sér standa og Sidonie telst til að fimm mínútur hafi varla liðið áður en hún var komin með nöfnin og tenginu við týndu hvunndagshetjurnar. Fallegur dagur „Ég bjóst ekki við að svona margt fólk myndi bregðast við og hjálpa mér að finna þá. Þeir komust því miður ekki í veisluna enda var ég svolítið sein á ferðinni með þetta en ég náði þó samt loksins að þakka þeim fyrir þannig að þetta var bara rosa flott.Manuel átti skemmtilegan og fallegan fermingardag um helgina þótt heiðursgestirnir hafi ekki komist í veisluna. „Manuel var líka mjög glaður og feginn að geta þakkað þeim fyrir,“ segir Sidonie og veit ekki betur en strákunum, sem nú eru komnir yfir þrítugt, hafi þótt gaman að rifja upp góðverkið sem þeir gerðu á fæðingardegi Manuels.
Fermingar Ástin og lífið Mest lesið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Hætt saman en ennþá vinir Lífið Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Fleiri fréttir „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi Sjá meira