Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 13. apríl 2026 14:31 Eiríkur segir að um mikil tímamót hafi verið að ræða þegar Viktor Orban tapaði kosningunum um helgina. Visir/Arnar Sextán ára valdatíð Viktors Orban í Ungverjalandi lauk um helgina þegar Tisza-flokkurinn með Péter Magyar í broddi fylkingar vann stórsigur í kosningum í landinu. Eiríkur Bergmann prófessor í stjórmálafræði og sérfræðingur í þróun þjóðernishyggju og pópúlisma í Evrópu segir að sigur Magyars hafi á endanum orðið enn stærri en búist hafði verið við og að um mikil tímamót sé að ræða. „
Þessi sextán ára valdatíð Orbans er auðvitað ótrúleg,“ segir Eiríkur. „Hann hefur sinn feril sem lýðræðislegur umbótasinni eftir fall kommúnismans en umbreytist síðan í harðasta þjóðernispopúlista Evrópu þegar hann kemst aftur til valda 2010 og hefur haldið Ungverjalandi á þessari leið sem hann kallaði sjálfur ófrjálslynt lýðræði en var í raun og veru ansi mikið harðræði þar sem gengið var langt í því að grafa undan stofnunum þess frjálslynda lýðræðis sem ríki, í það minnsta ríkin í Vestur-Evrópu eru reist á.“ Eiríkur segir að nú verði miklar breytingar í Ungverjalandi, sumar gerist samstundis þegar ný stjórn tekur við en lengri tíma muni taka að vinda ofan af öðrum. Orban hefur á sínum langa valdaferli grafið undan lýðræðisstofnunum, fjölmiðlafrelsi og kosningakerfi landsins, svo fátt eitt sé nefnt. En hver er þessi Magyar ? „Péter Magyar er enginn frjálslyndur Evrópusinni á vesturevrópska vísu, raunar bara langt í frá,“ segir Eiríkur. „Hann elst upp undir handarjaðri Viktors Orban í Fidez flokknum en snýst síðan í andstöðu við leiðtoga sinn. Hann er til dæmis algjörlega jafn harður í horn að taka í innflytjendamálum eins og Orban,“ segir Eiríkur og bendir á að Magyar tali til dæmis ekki sérstaklega fyrir frjálslyndi þegar kemur að málefnum kynjamálum eða réttindamálum. „Þannig að breytingar á þeim sviðum er erfiðara að segja til um. Það á svolítið eftir að koma í ljós,“ segir Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði við háskólann á Bifröst.
Ungverjaland Kosningar í Ungverjalandi Tengdar fréttir Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Verðandi forsætisráðherra Ungverjalands, Péter Magyar, var innanbúðarmaður í flokki Viktors Orbán þar til fyrir örfáum árum. Hann er sagður umdeildur, jafnvel á meðal eigin kjósenda. Magyar þykir metorðagjarn, hrokafullur og jafnvel andstyggilegur. 13. apríl 2026 11:06 Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér „Ungverjar sögðu já við Evrópu í dag,“ sagði Péter Magyar, formaður Tisza-flokksins sem vann stórsigur ungversku þingkosningunum í kvöld. „Þeir sögði já við frjálst Ungverjaland,“ hélt hann áfram í ræðu á kosningavöku flokksins. Hann bað forseta Ungverjalands um að veita flokknum stjórnarmyndunarumboð og segja svo strax af sér. „Ég bið allar strengjabrúðurnar sem hafa verið við völd síðustu sextán ár um að gera slík hið sama,“ bætti hann við. 13. apríl 2026 00:05 Orbán játar sig sigraðan Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, játar sig sigraðan í ungversku þingkosningunum og óskar Péter Magyar, formanni stjórnarandstöðuflokksins Tisza, til hamingju með sigurinn. Fyrstu tölur úr kjörkössum benda til þess að Tisza vinni stórsigur. 12. apríl 2026 19:28 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira
Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Verðandi forsætisráðherra Ungverjalands, Péter Magyar, var innanbúðarmaður í flokki Viktors Orbán þar til fyrir örfáum árum. Hann er sagður umdeildur, jafnvel á meðal eigin kjósenda. Magyar þykir metorðagjarn, hrokafullur og jafnvel andstyggilegur. 13. apríl 2026 11:06
Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér „Ungverjar sögðu já við Evrópu í dag,“ sagði Péter Magyar, formaður Tisza-flokksins sem vann stórsigur ungversku þingkosningunum í kvöld. „Þeir sögði já við frjálst Ungverjaland,“ hélt hann áfram í ræðu á kosningavöku flokksins. Hann bað forseta Ungverjalands um að veita flokknum stjórnarmyndunarumboð og segja svo strax af sér. „Ég bið allar strengjabrúðurnar sem hafa verið við völd síðustu sextán ár um að gera slík hið sama,“ bætti hann við. 13. apríl 2026 00:05
Orbán játar sig sigraðan Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, játar sig sigraðan í ungversku þingkosningunum og óskar Péter Magyar, formanni stjórnarandstöðuflokksins Tisza, til hamingju með sigurinn. Fyrstu tölur úr kjörkössum benda til þess að Tisza vinni stórsigur. 12. apríl 2026 19:28