Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Eiður Þór Árnason skrifar 11. apríl 2026 18:52 Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri hjá Icelandair, segir málið til skoðunar hjá flugfélaginu. Vísir Icelandair lítur lágflug sem farið var yfir Vestmannaeyjar í dag grafalvarlegum augum. Flugstjórinn er ættaður frá svæðinu og var að fara sitt seinasta flug áður en hann lætur af störfum vegna aldurs.
Um var að ræða Boeing 757-þotu á leið frá Frankfurt. Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri hjá Icelandair, segir að flugstjórinn hafi gert þetta án vitundar eða samþykkis stjórnenda hjá flugfélaginu sem hafi frétt af atvikinu eftir á. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Icelandair tilkynnt málið til lögreglu. Þá hefur það verið í samskiptum við Samgöngustofu vegna málsins. Grunur er um að flugstjórinn hafi farið niður fyrir leyfilegar hæðartakmarkanir. Biðjast velvirðingar Linda segir málið til skoðunar hjá flugfélaginu og að rætt verði við viðkomandi flugstjóra. Meðal annars sé til athugunar hvort vikið hafi verið frá þeim lögum og reglum sem snúa að flugi. „Við biðjum íbúa Vestmannaeyja velvirðingar ef þeir hafa orðið fyrir ónæði.“ Linda segist ekki hafa neitt í höndunum til að styðja það að einhver hætta hafi verið á ferðum. „Hins vegar er flug í eðli sínu þannig að við fylgjum mjög föstum verkferlum og tékklistum, og svona flug rúmast ekki innan þess ramma.“ „Ég veit líka að farþegar voru vel upplýstir um að þetta stæði til, en við lítum þetta grafalvarlegum augum,“ segir Linda. Á samfélagsmiðlum lýstu íbúar því að heimili þeirra hafi nötrað á meðan lágflugið stóð yfir. Á meðan sumir hafi verið meðvitaðir um það hvað væri á seyði hafi aðrir óttast að stórslys væri í uppsiglingu. Þá sagðist einn Eyjamaður hafa hringt upp á flugvöll af ótta við að eitthvað skelfilegt hefði gerst. Fréttin hefur verið uppfærð.
Icelandair Fréttir af flugi Vestmannaeyjar Lágflug Icelandair yfir Vestmannaeyjum Tengdar fréttir Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Eyjamönnum brá vægast sagt í brún þegar farþegaþota Icelandair flaug yfir bæinn í um hundrað metra hæð eða svo. Hávaðinn var mikill og héldu margir að flugvélin væri hreinlega að hrapa. 11. apríl 2026 16:25 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Eyjamönnum brá vægast sagt í brún þegar farþegaþota Icelandair flaug yfir bæinn í um hundrað metra hæð eða svo. Hávaðinn var mikill og héldu margir að flugvélin væri hreinlega að hrapa. 11. apríl 2026 16:25