Körfubolti

„Gaf frá mér hljóð sem enginn maður á mínum aldri á að gefa frá sér“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Svali Björgvinsson gat ekki varist brosi þegar hann rifjaði lýsingu sína á frægri flautukörfu Kára Jónssonar upp.
Svali Björgvinsson gat ekki varist brosi þegar hann rifjaði lýsingu sína á frægri flautukörfu Kára Jónssonar upp. sýn sport

Mögnuð sigurkarfa Kára Jónssonar fyrir Hauka gegn Keflavík í úrslitakeppninni í körfubolta karla 2018 er rifjuð upp í sjötta þætti Augnablikanna.

Það er skemmtilega vel við hæfi að þátturinn komi út núna, eftir aðra ótrúlega sigurkörfu Kára gegn Keflavík í fyrrakvöld, þá í búningi Vals.

Kári var hetja Hauka í öðrum leiknum gegn Keflavík í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar fyrir átta árum. Fyrst minnkaði hann muninn í þrjú stig með því að setja niður þrjú vítaskot. Keflavík fékk boltann í kjölfarið en tapaði honum eftir leikhlé.

Paul Anthony Jones bjargaði því að boltinn færi út af og hann endaði hjá Kára sem skaut honum yfir allan völlinn og ofan í körfuna. Haukar unnu leikinn, 82-85, og komust í 2-0 í einvíginu.

Karfan sjálf er fræg en tilþrif Guðjóns Guðmundssonar og Svala Björgvinssonar, sem lýstu leiknum, voru litlu síðri. Myndband af körfunni, með lýsingu þeirra félaga, fór sem eldur um sinu um samfélagsmiðla og birtist í erlendum fréttamiðlum.

„Þetta er bara sturlað augnablik og maður getur sett sig í spor Kára og Ívars [Ásgrímssonar, þjálfara Hauka] og leikmanna Hauka að það hefur verið ansi tilfinningum hlaðið,“ sagði Svali í sjötta þætti Augnablikanna sem nefnist „Skotið sem ómaði um netheima.“

„Stundum gerist það, eins og í þessu tilfelli, að dómgreind og einhvers konar mörk yfirgefa mig. Ég gaf frá mér hljóð sem enginn maður á mínum aldri á að gefa frá sér. Ég man að ég fór að hugsa: Hvað er að þér? Þú ert rúmlega fimmtugur, þriggja barna faðir og í vinnu þar sem er mikilvægt að allavega sumir taki þig alvarlega og svo gerist þetta. Þú ferð á þennan stað sem er að einhverju marki gaman.“

Klippa: Augnablikin - Skotið sem ómaði um netheima

Kári segir erfitt að lýsa líðan sinni eftir að hann hitti úr skotinu.

„Maður fer í eitthvað mók. Það er einhver sigurtilfinning sem var svakaleg. Strákarnir komu allir á sprettinum á mann og maður fagnaði með þeim um leið. Svo kemur smá efi hvort ég hafi ekki pottþétt náð að losa boltann áður en tíminn kláraðist. Það var óþörf bið þar sem maður var smá stressaður,“ sagði Kári.

Haukar unnu einvígið gegn Keflavík, 3-2, en féllu svo úr leik í undanúrslitunum gegn KR, 3-1.

Brot úr „Skotinu sem ómaði um netheima“, sjötta þætti Augnablikanna, má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Þáttinn í heild sinni má nálgast á efnisveitu Sýnar Sport.


Tengdar fréttir

Ferðalagið hans Jeb Ivey: Spurði Inga hvort hann væri brjálaður

Flestir blótuðu eldgosinu í Eyjafjallajökli í sand og ösku en ekki fólkið í Stykkishólmi. Í þriðja þætti Augnablikanna er sagan af ótrúlegu ferðalagi Jebs Ivey fyrir annan leik Snæfells og Keflavíkur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla 2010 rakin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×