„Ný atvinnustefna Íslands markar tímamót“ Árni Sæberg skrifar 10. apríl 2026 11:49 Kristrún Frostadóttir er forsætisráðherra. Vísir/Vilhelm Ríkisstjórnin hefur samþykkt nýja atvinnustefnu Íslands. Þessi fyrsta heildstæða atvinnustefna Íslands er 10 ára vaxtarplan sem lýsir því hvernig stjórnvöld vinna með atvinnulífi og samfélagi að verðmætasköpun í landinu. Atvinnustefnunni fylgir einnig aðgerðaáætlun sem nær til áranna 2026 – 2027 þar sem settar eru fram 35 aðgerðir til að stuðla að markvissri innleiðingu stefnunnar. Forsætisráðherra segir um tímamót að ræða. „
Ný atvinnustefna Íslands markar tímamót. Í fyrsta sinn hefur ríkisstjórn Íslands samþykkt atvinnustefnu sem er birt og öllum ljós. Þannig samhæfum við aðgerðir stjórnvalda gagnvart atvinnulífi og stuðlum að því að stjórnkerfið allt vinni að sama marki. Þetta veitir fyrirsjáanleika til fjárfestinga og uppbyggingar,“ er haft eftir Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í fréttatilkynningu um atvinnustefnuna. Efli útflutning og háframleiðnigreinar Kristrún kynnti atvinnustefnuna á blaðamannafundi fyrir skömmu ásamt þeim Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. „Atvinnustefnan hefur það meginmarkmið að efla útflutning og atvinnugreinar með mikla framleiðni. Með því leggjum við áherslu á góðan hagvöxt sem er í jafnvægi við samfélag og innviði. Til að styrkja Ísland og bæta lífskjör þjóðarinnar,“ er haft eftir forsætisráðherra. Einfaldi regluverk, auki orkuöflun, styrki innviði og fleira Í tilkynningu segir að atvinnustefnan sé afrakstur víðtæks samráðs stjórnvalda við fjölbreyttan hóp hagaðila undanfarna mánuði. Í stefnunni sé fjallað sérstaklega um lykilviðfangsefni og áskoranir en til grundvallar stefnunni liggi stöðugreining um þróun efnahags- og atvinnulífs 2010 til 2024. Þar sé meðal annars dregið fram að hagvöxtur á mann undanfarin ár hafi verið afar takmarkaður og hagvöxtur á tímabilinu byggi fyrst og fremst á fólksfjölgun. Í atvinnustefnunni sé sett fram framtíðarsýn þar sem verðmætasköpun sé knúin af fjölbreyttum útflutningi sem byggi á nýsköpun og sjálfbærri nýtingu auðlinda. Sérstaklega sé horft til frekari vaxtar háframleiðnigreina. Áhersla sé lögð á einföldun regluverks, aukna orkuöflun, styrkingu innviða, eflingu iðnnáms, styrkingu svokallaðra STEM-greina, eflingu vísinda og nýsköpunar, aukna færni á vinnumarkaði og að vinna aftur skipulega að stórfjárfestingum í nýjum kjölfestuverkefnum á landsbyggðinni. Menntun stærsta atvinnumálið „Við búum í breyttum heimi með aukinni óvissu í alþjóðaviðskiptum og leggjum því áherslu á aukið efnahagslegt öryggi Íslands og áfallaþol - fyrir fyrirtækin og fjölskyldurnar í landinu. Við stöndum sömuleiðis frammi fyrir hröðum tækniframförum, ekki síst í gervigreind, sem mun hafa mikil áhrif á atvinnuvegina til framtíðar. Því ætlum við að byggja upp sterka gervigreindarinnviði og auka framleiðni og verðmætasköpun,“ er haft eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra. Þá er haft eftir Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra að menntun sé stærsta atvinnumálið. „Við ætlum því að efla raunvísindi, tækni, verkfræði og stærðfræði innan skólanna og um leið styrkja starfs- og iðnnám. Markmiðið er að fleiri ungmenni fái raunhæf tækifæri til blómstra og þau hafi bæði gagn og gaman í skólunum okkar.“ 35 aðgerðir Þá segir að þær 35 aðgerðir sem sé að finna í aðgerðaáætlun atvinnustefnunnar skiptist í fjögur forgangsverkefni. Það fyrsta sé orku- og innviðaumbreyting sem undirstaða sterkara hagkerfis. „Aðgerðir miða að því að tryggja nægt og samkeppnishæft framboð raforku, skilvirkt flutnings- og dreifikerfi og skýrari umgjörð fyrir leyfisferla og fjárfestingar. Markmiðið er að efla orkuöryggi, styðja við orkuskipti, bæta fyrirsjáanleika til fjárfestinga og einfalda rekstrarumhverfi atvinnulífsins. Jafnframt er stefnt að því að laða að fjárfestingu, bæta aðgengi að erlendum mörkuðum og styrkja efnahagslegt öryggi Íslands.“ Annað sé öflugur mannauður, þekking og færni fyrir atvinnulíf framtíðarinnar. „Aðgerðir miða að því að skapa forsendur fyrir því að Ísland geti mætt örri tækniþróun og alþjóðlegri samkeppni. Áhersla er lögð á STEM-greinar, verk- og tæknimenntun, sveigjanlegar námsleiðir og aðlögun menntakerfisins að þörfum atvinnulífsins. Jafnframt er lögð áhersla á mikilvægi þess að laða að sérfræðinga á heimsmælikvarða og efla tæknilega og stafræna hæfni á íslenskum vinnumarkaði.“ Þriðja sé vísindi og nýsköpun sem drifkraftur verðmætasköpunar. „Aðgerðir miða að því að bæta umgjörð rannsókna, tækniþróunar, menntunar og nýsköpunar og styrkja tengsl háskóla, atvinnulífs og stjórnvalda. Með markvissri og fyrirsjáanlegri stuðningi, bættum aðgangi að fjármagni og uppbyggingu innviða á lykilsviðum verður lagður traustur grunnur að aukinni verðmætasköpun og fjölbreyttari útflutningi.“ Loks sé það fjórða sátt um öflugar auðlindagreinar. „Aðgerðir beinast að því að vinna að heildstæðum umbótum í umhverfi útflutningsgreina sem reiða sig á náttúruauðlindir til lands og sjávar. Skapa þarf sátt um þær með réttlátum og skynsamlegum auðlindagjöldum samhliða umbótum sem miða að aukinni verðmætasköpun, einföldun regluverks og lágmörkun umhverfisáhrifa.“ Loks segir að aðgerðaáætlunin nái til tímabilsins 2026 til 2027 en stefnt sé að því að ný aðgerðaáætlun verði kynnt á um það bil tveggja ára fresti.
Efnahagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira