Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Agnar Már Másson skrifar 5. apríl 2026 10:30 Snjóflóðið hrifsaði með sér göngugarpana hátt í fimmtíu eða sextíu metra, að sögn Sigrúnar. „Svo bara dustuðum við af okkur og héldum upp aftur,“ bætir hún við. Þær vöruðu svo aðra göngumenn við flóðahættunni. Aðsend Fjallagarpurinn Sigrún Linda Birgisdóttir var hrifsuð fimmtíu metra niður Akrafjall þegar snjóflóð féll þar í gærmorgun en nokkur snjóflóðahætta var á höfuðborgarsvæðinu í gær.
Veðurstofan varaði upp úr hádegi í gær við snjóflóðahættu á höfuðborgarsvæðinu eftir að tilyknningar bárust um slík. Veðurstofan mælti meðal annars gegn því við göngumenn á Esjunni að þeir gengu lengra en upp að Steini. Fyrr þann dag hafði Sigrún farið í fjögurra manna hópi upp á Akrafjall en göngugarparnir eru allir félagar í fjallgönguhópnum Toppförum. „Það var töluverður snjór. Þegar við vorum komin í fyrstu brekkuna er einn á undan mér, svo kem ég og svo önnur, og snjóflóðið tekur okkur tvær,“ segir Sigrún í samtali við Vísi. „Og við berumst bara niður með því. Bara rólega, kannski fimmtíu metra, og það fór kannski svona upp í mitti.“ Blessunarlega sakaði engan, að sögn Sigrúnar, en hún var með mannbrodda og gat því stöðvað sig. „Annars hefði ég líklegast farið lengra,“ segir hún. Gönguleiðin sem Sigrún fór.Aðsend „Það var enginn skaði skeður og ég var ekkert hrædd eða neitt. Svo bara dustuðum við af okkur og héldum upp aftur,“ bætir hún við. „En maður sá víðs vegar á þessum slóðum að það kann að vera varhugavert að fara um þessi svæði.“ Á leið sinni niður hafi gönguhópurinn svo varað þá sem þau mættu á leiðinni við snjóflóðahættunni. Sömuleiðis hafi hún sett inn færslu inn á Facebook-hópinn Snjóflóðatilkynningar. Sigrún er reyndur fjallagarpur en hefur aldrei lent í öðru eins. Hún hefur heldur ekki orðið vör við snjóflóð í Akrafjalli áður þrátt fyrir að hafa gengið þar áður. „Aldrei heyrt það, kannski einhverjir aðrir. Ég hef aldrei lent í þessu áður. Aldrei,“ segir hún. „En þetta er lífsreynsla út af fyrir sig.“
Snjóflóð á Íslandi Akranes Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Sjá meira