Sakaði Luke Littler um dónaskap Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. apríl 2026 10:36 Luke Littler klikkaði á heimavelli sínum í Manchester og var mjög pirraður. Getty/Kate McShane Gerwyn Price tryggði sér sigur á úrvalsdeildarkvöldi í Manchester en það voru þó ungu mennirnir sem stálu fyrirsögnunum eftir að Gian van Veen sakaði Luke Littler um að hafa sýnt sér dónaskap.
Walesverjinn Price var í stórkostlegu formi allt kvöldið, með 105,84 að meðaltali þegar hann sigraði Van Veen 6-2 í úrslitaleiknum og færði sig upp í annað sæti úrvalsdeildartöflunnar með sínu öðru sigurkvöldi á tímabilinu. Helsta umræðuefnið kom í lok spennandi 6-5 sigurleiks Van Veen á móti Littler í átta manna úrslitum. View this post on Instagram A post shared by SPORTbible (@sportbible) Hollendingurinn sýndi merki um vonbrigði eftir að hafa misst af tvöföldum fimmtán til að vinna leikinn og sá Littler á sama tíma fagna klúðri sínu. Það leiddi til reiðilegra viðbragða frá heimsmeistaranum, sem benti Hollendingnum á að halda áfram. Littler missti síðan af tveimur öðrum pílum til að vinna leikinn og gerði síðan „væluskjóðu“-bendingu til áhorfenda. Luke Littler sýndi þessa „væluskjóðu“-bendingu sem átti að tákna Gian van Veen. Þessir ungu og frábæru pílukastarar voru ekki sáttir hvor með annan.Getty/Peter Byrne Van Veen hélt þó ró sinni og hitti tvöfaldan sex til að vinna leikinn. Stutt handaband fylgdi í kjölfarið áður en Littler gekk í burtu. „Frá mínum bæjardyrum séð, þá missti ég af tvöföldum fimmtán og var brjálaður út í sjálfan mig fyrir að klúðra því og ég leit við og hann var að fagna því að ég klikkaði,“ sagði Van Veen við Sky Sports. „Það var dónaskapur. Ég var brjálaður yfir því,“ sagði Van Veen. „Hann sá það líklega og missti svo af þremur pílum í tvöfaldan sjö og horfði svo á mig eins og ég væri vandamálið og ég hugsaði með mér: ‚Ég veit ekki hvað ég gerði rangt því þú ert að fagna því að ég klikkaði‘.“ View this post on Instagram A post shared by Online Darts (@officialoldarts) „Mér fannst það dónaskapur. Hann klikkaði og svo kláraði ég og hann er líklega brjálaður. Þetta er pílukast og þetta er mitt sjónarhorn. Hans sjónarhorn er líklega öðruvísi, en svona er þetta,“ sagði Van Veen. „Ég dýrka Luke. Hann er frábær leikmaður og frábær fyrir íþróttina. Að sjá alla þá athygli sem hann hefur vakið á henni er stórkostlegt en þetta er líka hluti af þessu og í dag var minn dagur,“ sagði Van Veen. Littler svaraði ummælum Van Veen með hlæjandi brosköllum á Instagram-sögu sinni og birti einnig mynd sem sýndi PDC-titlana sem hann hefur unnið á síðustu tveimur árum. Littler var að keppa á heimavelli og því voru það risastór vonbrigði fyrir hann að komast ekki lengra en í átta manna úrslitin.
Pílukast Mest lesið „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Enski boltinn Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Íslenski boltinn Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Enski boltinn Barcelona Evrópumeistari Fótbolti Sara Björk kveður Sádi-Arabíu Fótbolti „Allir tilbúnir að hrauna yfir þjálfarann“ Íslenski boltinn Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Íslenski boltinn Skikkaðir í einangrun fram að HM Fótbolti Benítez rekinn eftir 40 leiki Fótbolti Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Óskar á skotskónum Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Kane með þrennu í úrslitaleik Góður sigur en erfitt að ná meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Mercedes ökumennirnir halda áfram að berjast Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Barcelona Evrópumeistari Guðrún vann Íslendingaslaginn og Kristianstad í brasi Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Skikkaðir í einangrun fram að HM Benítez rekinn eftir 40 leiki Spilar sinn síðasta leik í dag Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Halldór Garðar kveður Keflavík „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Upplifði mikla þjáningu yfir lengri tíma Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Dagskráin í dag: Stúkan gerir upp umferðina og Formúlan í Kanada Slæm stjórnartíð Steve Cooper tekur enda Tvöföld úrslit hjá Lilju Katrínu í Úsbekistan Sjá meira