Glódís skoraði gegn United og tryggði Bayern áfram í undanúrslit Ágúst Orri Arnarson skrifar 1. apríl 2026 18:46 Glódís bjargaði Bayern frá því að detta úr leik. Jasmin Walter/Getty Images Glódís Perla Viggósdóttir skoraði gríðarmikilvægt mark og átti heiðurinn að hinu markinu í 2-1 sigri Bayern Munchen gegn Manchester United í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Einvíginu lauk með samanlögðum 5-3 sigri Bayern sem heldur áfram í undanúrslit.
Bayern var með 3-2 forystu eftir fyrri leikinn á Old Trafford en gestirnir frá Manchester jöfnuðu metin snemma. Eftir aðeins tólf mínútna leik slapp Melvine Malard inn fyrir vörnina og jafnaði einvígið fyrir United. Bayern var hættulegri aðilinn það sem eftir lifði leiks en liðið þurfti að bíða lengi eftir marki. Það kom loks á 80. mínútu, þegar liðið tók sína tólftu hornspyrnu tókst Glódísi Perlu að skalla boltann í netið. Með því marki jafnaði Bayern leikinn en komst 4-3 yfir í einvíginu. Þýskalandsmeistararnir létu það hins vegar ekki duga og Glódís var ekki hætt að ógna úr hornspyrnum. Aðeins fjórum mínútum síðar fékk Bayern aðra hornspyrnu og aftur náði Glódís góðum skalla, en í þetta sinn var boltanum bjargað á línu. Linda Dallmann náði hins vegar að pota honum yfir línuna og Bayern vann leikinn 2-1, einvígið 5-3. Bayern er fyrsta liðið til að tryggja sig áfram í undanúrslit. Liðið mun líklega mæta Barcelona en Börsungar eru 6-2 yfir gegn Real Madrid eftir fyrri leikinn.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Þýski boltinn Tengdar fréttir Glódís Perla fékk dæmt á sig víti á Old Trafford en fagnaði sigri Bayern München er í ágætum málum í átta liða úrslitum Meistaradeildar kvenna í fótbolta eftir 3-2 sigur í fyrri leik sínum við Manchester United en leikurinn fór fram á Old Trafford. 25. mars 2026 21:56 Glódís vissi strax upp á sig sökina Glódís Perla Viggósdóttir gat gengið glöð af velli á Old Trafford í gærkvöld, eftir frábæran 3-2 sigur gegn Manchester United, og var sjálfsagt enn fegnari en ella því hún hafði fengið dæmda á sig vítaspyrnu í leiknum. 26. mars 2026 10:33 Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Fleiri fréttir Jökull rekinn frá Stjörnunni Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool ÍA – Víkingur R. | Toppliðið í bikarleik uppi á Skaga Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Elísa Lana tryggði Kristianstad jafntefli Kanada - Bosnía | Annar opnunarleikur HM Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM „Hafið þið ekki horft á leikina?“ Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Sjá meira
Glódís Perla fékk dæmt á sig víti á Old Trafford en fagnaði sigri Bayern München er í ágætum málum í átta liða úrslitum Meistaradeildar kvenna í fótbolta eftir 3-2 sigur í fyrri leik sínum við Manchester United en leikurinn fór fram á Old Trafford. 25. mars 2026 21:56
Glódís vissi strax upp á sig sökina Glódís Perla Viggósdóttir gat gengið glöð af velli á Old Trafford í gærkvöld, eftir frábæran 3-2 sigur gegn Manchester United, og var sjálfsagt enn fegnari en ella því hún hafði fengið dæmda á sig vítaspyrnu í leiknum. 26. mars 2026 10:33