Ekki sannfærð um aðild en kallar eftir kjölfestu í umræðu Lovísa Arnardóttir skrifar 31. mars 2026 10:51 Halla Hrund vill að umræðan verði tekin á dýptina og á breiðari grunni en hún nú er. Vísir/Vilhelm Halla Hrund Logadóttir þingkona Framsóknarflokksins telur mikilvægt að þjóðin fái að kjósa um það hvort að halda eigi aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram. Hún segist ekki á móti Evrópusamvinnu en hún sé ekki sannfærð um að aðilda sé rétta svarið. Hún segir skorta kjölfestu í umræðu svo hún geti farið fram á heilbrigðan hátt og kallar eftir kjölfestu frá stjórnvöldum.
Halla Hrund segir í Facebook-færslu sinni umræðuna í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar erfiða og kallar eftir kjölfestu svo betri umræða geti farið fram. Halla Hrund telur EES-samninginn hafa reynst Íslendingum vel en að það þurfi að efla alþjóðasamstarf. Hvort það sé rétt að gera það í Evrópusambandinu eða með öðrum leiðum verði að ræða. „Ég er alls ekki á móti Evrópusamstarfi, ég er ekki sannfærð um að aðild sé endilega rétta leiðin en ég ætla að taka samtalið af fullum heiðarleika,“ segir Halla Hrund í samtali við fréttastofu. Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins hefur sagt flokkinn einhuga í sinni afstöðu gegn aðild að Evrópusambandinu. Í viðtali við RÚV í upphafi mánaðar sagði hún stjórnvöld á rangri leið. Þau ættu frekar að vinna að því að draga úr verðbólgu og vöxtum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tilkynnti um atkvæðagreiðsluna í upphafi mánaðar og hefur lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis á þingi. Tillagan var til umræðu á þremur þingfundum og á fundum bæði utanríkismála- og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Tillagan er nú til vinnslu hjá utanríkismálanefnd. Tillagan Nefndin hefur gefið umsagnarfrest til 7. apríl og hafa eins og stendur sent inn umsögn. Verða að hlusta Hún segir fólk verða að vera tilbúið að hlusta á ólík sjónarmið. „Það er ekki gagnlegt fyrir umræðuna ef allir mæta og eru ekki tilbúnir að hlusta á ólík sjónarmið. Þá verður ekki neitt samtal. Það er ekki gagnlegt fyrir þessa umræðu sem er að fara af stað, né aðra umræðu. Það eru að byrja heimsóknir til utanríkismálanefndar. Það er ekki gagnlegt að vera með risastórar yfirlýsingar nema um hverjar breiðu strokurnar eru, því til hvers væri þá samtalið? spyr Halla Hrund. Hún segir umræður í þingsal og víðar verða að fara þannig fram að fólk sé tilbúið að hlusta. „Ég er að kalla eftir þessari kjölfestu sem er þá hægt að rýna,“ segir Halla Hrund og ákallinu sé beint að stjórnvöldum. Setji þau fram einhverjar fullyrðingar verði þau að skýra af hverju og hvaðan þær komi. Hvort eitthvað land hafi fengið einhverja undanþágu og hvernig það gæti litið út fyrir Ísland eða hvort þau hafi fundað og þar hafi eitthvað komið fram sem styðji einhverja ákveðna fullyrðingu. „Að setja fram kjölfesturit er grunnurinn að því að hægt sé að eiga vitrænt samtal og að komast nær því að ná niðurstöðu um með hvaða hætti alþjóðasamvinnu Íslands á að vera háttað.“ Halla Hrund telur ekki ábyrgt að nálgast umræðuna eins og hún er í dag þar sem ólíkir hagaðilar fullyrða á víxl. „Það er hlutverk ríkisstjórnar landsins að setja fram kjölfestuna.“ Verði að vinna heimavinnuna Halla Hrund vísar í færslu sinni á Facebook til ræðu sem hún hélt um málið á þingi í fyrstu umræðu. Þar segir hún að í umræðu um þetta mál hafi skort kjölfestu. „Forsendan fyrir uppbyggilegu samtali og heilbrigðri umræðu er að heimavinnan sé unnin af myndugleik. Það er nauðsynlegt ef umræðan á að ná þeirri dýpt sem hún þarfnast, svo að traust og heiðarleiki geti þrifist í samtalinu. Í dag tvístrast umræðan og sundrast, því grunnur hennar er veikur. Allir telja sig hafa rétt fyrir sér og fylkingar rísa. Við finnum það öll,“ segir Halla Hrund og að slíka kjölfestu ætti að finnast í greiningu frá ríkisstjórninni. Slík greining ætti að kanna allar hliðar málsins. Það sé ekki hægt að vita allt fyrir fram en margt sé vel þekkt í umgjörð sambandsins og í reynslu annarra þjóða. „Umræðan mun að sjálfsögðu fara fram í samfélaginu; hjá háskólum, fjölmiðlum, hagsmunasamtökum og fleirum, og það er mikilvægt. En það breytir ekki því að ríkisstjórn Íslands, sem leiðir landið, ber ábyrgð gagnvart þingi og þjóð. Kjölfestan í umræðunni þarf því að koma þaðan. Það er grunnurinn að trúverðugleika hennar og málsins í heild. Í slíkri kjölfestu felst pólitísk ábyrgð sömuleiðis. Við verðum að muna að: Þetta mál er stærra en hagsmunir einstakra flokka. Það er stærra en framtíð núverandi ríkisstjórnar eða fortíð þeirra sem á undan komu. Og það er stærra en sjónarmið okkar sem kjósenda í dag,“ segir Halla Hrund. Vel sett innan EES Hún segist alltaf hafa talið Ísland vel sett innan EES-samningsins en á sama tíma sé mikilvægt að ræða af alvöru hvernig Ísland hagar sínum alþjóðamálum. Halla Hrund segist opin fyrir vönduðu samtali um Evrópusamvinnu og utanríkismál Íslands í heild. „Þar geta ólíkar leiðir komið til greina sem meta þarf í samhengi og samanburði, svo sem aukin samvinna við Evrópu á ákveðnum sviðum; sterkari norræn samvinna; ný nálgun í Norðurslóðamálum; markviss tengsl við vaxandi markaði í Asíu, eða sambland af leiðum,“ segir Halla Hrund. Hún segir nauðsynlegt að taka umræðuna á dýpt og á breiðari grunni. „Ég mun leggja mig alla fram við að taka þátt í samtalinu á dýptina og af heilindum. Ekki í athugasemdakerfum samfélagsmiðlanna, heldur innan þings og utan, augliti til auglitis.“
Framsóknarflokkurinn Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Evrópusambandið Alþingi Mest lesið Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Innlent Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent Bæjarstjóri í þriðja skipti Innlent Akreinum fækki þó bílum fjölgi: Flöskuhálsinn ekki endilega fjöldi akreina Innlent Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Innlent Maður sem passaði við lýsinguna var handtekinn Innlent Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Erlent Alexandra ráðin bæjarstjóri Suðurnesjabæjar Innlent Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Innlent Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Erlent Fleiri fréttir Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Leita eigenda hunds sem fannst dauður við Langjökul Íslendingar berjast um eitt af efstu átta sætunum á EM Bandero segist elta hvalbátana og Pollamótið hafið fyrir norðan Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Engum verkefnum útvistað og ekki greitt fyrir ráðgjöf Maður sem passaði við lýsinguna var handtekinn Alexandra ráðin bæjarstjóri Suðurnesjabæjar Hafna tillögum um þéttingu í Grafarvogi Bæjarstjóri í þriðja skipti Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Akreinum fækki þó bílum fjölgi: Flöskuhálsinn ekki endilega fjöldi akreina Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Sjá meira
Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent
Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent